- Advertisement -

Alþjóðaviðskipti og fjárfestingar krefjast þess ekki að auðlindir séu seldar úr landi

„Á þeim tíma þegar Landsvirkjun var stofnuð og barist var fyrir landhelginni voru Íslendingar að leggja grunn að framtíð sinni sem íbúar í nýlega sjálfstæðu ríki og mikil áhersla var lögð á að byggja til framtíðar.“

Halla Hrund Logadóttir Framsóknarflokki og félagar hennar í þingflokki Framsóknar hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um jarðakaup útlendinga á Íslandi.

Í upphafi ályktunarinnar segir:

„Með þingsályktunartillögu þessari er atvinnuvegaráðherra falið að skipa sérfræðihóp sem útfæri frekari breytingar á lögum með það að markmiði að takmarka jarðakaup erlendra aðila hér á landi. Þar sem málefni jarða og eignarréttinda yfir þeim eiga snertifleti við nokkur ráðuneyti er lagt til að ráðherra hafi samráð við forsætisráðherra, dómsmálaráðherra, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra við skipan starfshópsins. Starfshópurinn skili drögum að frumvarpi sem verði lagt fram af ráðherra eigi síðar en á haustþingi 2025. Tillagan er sett fram í ljósi langtímahagsmuna Íslands í auðlindamálum.“

…að láta okkur málin varða…

Síðar í greinagerðinni segir:

„Alþjóðaviðskipti og fjárfestingar krefjast þess hins vegar ekki að auðlindir séu seldar út fyrir landsteinana. Þvert á móti er hægt að laða að erlent fjármagn og stunda öflug viðskipti til dæmis með því að veita aðkomu að verkefnum í gegnum nýtingarleyfi. Fjárfesting í gegnum nýtingarleyfi er til dæmis nýtt í auðlindaríku landi líkt og Ástralíu. Fleiri leiðir eru færar og hægt að greina og útfæra sem snúa að takmörkunum á jarðakaupum erlendra aðila og ljóst er að mörg Evrópuríki ganga lengra í þeim málum en Ísland í sinni löggjöf með auðlinda- og öryggissjónarmið í huga.

Á þeim tíma þegar Landsvirkjun var stofnuð og barist var fyrir landhelginni voru Íslendingar að leggja grunn að framtíð sinni sem íbúar í nýlega sjálfstæðu ríki og mikil áhersla var lögð á að byggja til framtíðar. Í dag hefur samfélagið vaxið og dafnað og verðmæti þessara auðlinda okkar – hvort sem er kalt eða heitt vatn, orka og jarðefni – sömuleiðis aukist til muna. Í raun má segja að við höfum aldrei verið með jafn góð spil á hendi og möguleikar okkar eru óteljandi og öfundsverðir í alþjóðlegu samhengi.


Við þurfum hins vegar að láta okkur málin varða svo að vel sé búið um hnútana og tækifærin fyrir samfélagið nýtt til fulls. Með slíkri langtímahugsun má tryggja að afkomendur okkar geti, líkt og við, litið um öxl og fyllst þakklæti yfir því hvernig við spiluðum úr spilunum af kostgæfni; fyrir kynslóðir okkar tíma en ekki síður fyrir framtíðina.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: