- Advertisement -

Arion banki – úlfur í sauðargæru?

Tómas Guðbjartsson skrifar:

Ég hef býsna oft stungið niður penna og hneykslast á misheppnuðu kísilveri í Helguvík, sem framan af var kennt við United Silicon. Sem betur fer var þessum mengandi óskapnaði lokað í september 2017 eftir að fjöldi íbúa í Reykjanesbæ hafði veikst af útblæstri verksmiðjunnar – sem allir eru sammála um að standi alltof nálægt íbúðabyggð. En núverandi eigandi, Stakkaberg, sem er í eigu Arionbankia, gefst ekki upp við að reyna að opna verksmiðjuna að nýju. Samt hefur virði hennar verið fært niður í bókum bankans og flestir á því að henni sé best borgið sem brotajárn. Eftir að bankinn tilkynnti ein af mörgum endurlífgunaráformum sínum fyrit tæpum tvemur árum skrifaði ég harðorða grein https://www.visir.is/g/20201163593d/arion-banki-i-bulli, líkt og margir aðrir.

Eitthvað lognaðist umræðan út af, enda bankanum erfið. Nú er Arionbanki aftur mættur með adrenalínsprautu sem ætluð er löngu dauðvona verksmiðju. Ástæðan er eflaust sögulega hátt kísilverð um þessar mundir – sem allar líkur eru á að lækki aftur þegar Covid-faraldrinum líkur. Breytingatillögur Stakkabergs á þessu verksmiðjulíki hefur Skipulagsstofnun af óskiljanlegum ástæðum blessað – sem þó réttlætir engan veginn opnun hennar. Þyngst vegur að verksmiðjan er afar mengandi, en á fullum afköstum er talið að hún brenni allt að 150.000 tonnum af kolum á ári. Síðan vilja hvorki íbúar né bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ sjá verksmiðjuna – og í staðinn losna við hana – enda bæði heilsuspillandi og ljót. Ætlar Arion banki virkilega að fara gegn íbúum og bæjaryfirvöldum eins stærsta byggðakjarna á Íslandi – eingöngu með gróða að leiðarljósi? Einnig má spyrja hvort opnun verksmiðjunnar samrýmist áformum bankans í baráttunni við loftslagsvandann. Hvar er samfélagslega ábyrgð bankans? Eða er bankinn úlfur i í sauðargæru sem á heimasíðu sinni auglýsir græn gildi og skartar bankastjóra sem nýlega var valinn Markaðsmaður ársins? Bankinn skilaði jú methagnaði í krónum talið og telst varla á vonarvöl. Er ekki kominn tími til að bankinn forgangsraði með umhverfi og heilsu fólks að leiðarljósi – í stað peninga? Þannig banka held ég að flestir vilji skipta við.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: