- Advertisement -

Átökin í Sjálfstæðisflokki: Aðför að forystunni og einstaka þingmönnum

Segir flokkinn ekki lengur höfða til almennra kjósenda.

Ragnheiður Ríkharðsdóttir, fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er ekki áhyggjulaus vegna átakanna í flokknum. Hún skrifar á Facebook:

„Það er svo dapurt að verða vitni aftur og aftur að því, að sumum í Sjálfstæðisflokknum finnist að þar eigi bara að ríkja ein skoðun. En nú kemur það líka greinilegar fram en áður að fara eigi gegn forystunni á næsta landsfundi og einstaka þingmönnum í komandi prófkjöri. Við sjálfstæðismenn þurfum að spyrja okkur sjálfa að því hvort þarna liggi ekki ástæða þess að flokkurinn okkar höfðar ekki lengur til hins almenna kjósanda.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: