- Advertisement -

Atvinnurekendur hafa misst tökin!

Umræðan: Stefán Ólafsson skrifaði:

„Talsmaður samtaka atvinnurekenda (SA) segir að Seðlabankinn hafi misst tökin á þróun verðbólguvæntinga, þrátt fyrir að hagkerfið hafi verið keyrt niður í stöðnun hagvaxtar og verulega aukið atvinnuleysi, með óvenju háum raunvöxtum.

Það er alveg rétt.

Stefán Ólafsson.

En atvinnurekendur hafa ekki síður misst tökin á launaþróuninni. Í kjarasamningum 2024 til fjögurra ára var samið um nálægt 4% hækkun launakostnaðar á ári, en síðan hefur bæst við mikið launaskrið (sem atvinnurekendur einir bera ábyrgð á). Hluti af því eru sérstaklega miklar umframhækkanir í opinbera geiranum. Það hefur skilað sér í 7-8% hækkun launavísitölu á meðan kjarasamningsbundnar hækkanirt eru rétt um 4%. Nú í janúar voru þessar umsömdu launahækkanir vel undir verðbólgunni (5,2%).

Svo kennir Seðlabankinn verkalýðshreyfingunni stöðugt um of miklar launahækkanir – þegar sökin er alfarið á ábyrgð atvinnurekenda, bæði hjá ríki og á almennum markaði.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: