- Advertisement -

Stefnir ekki fjárhag ríkisins í hættu

Umræðan: Prófessor Gylfi Magnússon skrifaði eftirfarandi um tengingu bóta við laun:

„Verð að viðurkenna að ég skil ekki alveg lætin vegna fyrirhugaðrar tengingar bóta almannatrygginga við laun. Það er ekki nokkur leið að fá það út að þetta stefni fjárhag ríkisins í hættu, upphæðirnar sem um ræðir eru það lágar í samhengi við rekstur ríkisins.

Í greinargerð með frumvarpinu er kostnaðurinn metinn á 4-5 milljarða króna á ári, sem virkar sæmilega trúverðugt. Miðum hér við 4,5 milljarða. Rétt tæplega helmingur þess ætti að skila sér strax aftur til ríkis- og sveitarfélaga í gegnum tekjuskatt (950 milljónir), útsvar (675 milljónir) og svo virðisaukaskatt (557 milljónir) ef við gerum ráð fyrir að tekjurnar fari í neyslu í almenna virðisaukaskattsþrepinu (svo gætu líka einhverjar tekjur skilað sér til ríkisins í gegnum vörugjöld og tekjuskatt seljenda vöru og þjónustu en sleppum því til einföldunar). Þá eru eftir svona um það bil 2,3 milljarðar sem útgjöld hins opinbera aukast um að frádregnum nýjum tekjum. Það er rétt innan við einn fimmti af einu prósenti af skatttekjum ríkisins.

Það setur augljóslega ekki fjárhag ríkisins í uppnám. Það má auðvitað deila um svona breytingar, til þess eru stjórnmálin (!) en varla á þeim forsendum að þetta stefni ríkisfjármálunum í einhverja stórhættu. Það er annað mál að orðalagið sem lagt er til vegna þessarar breytingar er ekki alveg nógu skýrt um það hvað eigi að gera þegar laun hækka ýmist meira eða minna en verðlag, en það er auðvelt að laga.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: