- Advertisement -

Þegar viðvörunarborðarnir eru hundsaðir

Jóhann Þorvarðarson skrifar:

Á evrusvæðinu eru íbúðalán og fyrirtækjalán veitt á kjörum sem íslensk heimili og fyrirtæki geta aðeins látið sig dreyma um: íbúðalánavextir á bilinu 2–4% og fyrirtækjalán á bilinu 3–5%. Á sama tíma eru íslenskir lántakar að greiða vexti sem eru vel norðan við 10%.

„Afstaða Vilhjálms Birgissonar og Sólveigar Jónsdóttur til aðildarviðræðna við Evrópusambandið tekur ekki mið af efnahags- og öryggisbreytingum sem orðið hafa á undanförnum árum.

Viðhorf þeirra minnir óneitanlega á manninn sem óð yfir gulan viðvörunarborða sem búið var að strengja fyrir gangstéttina. Hann var vanur að ganga leiðina og ætlaði að halda því áfram hvað sem tautaði og raulaði. Það beið hans ekkert annað en að stíga beint út í öklaháa blauta steinsteypu. Fussaði hann og sveiaði óskaplega yfir verkamönnunum fyrir að vara sig ekki við. Hélt hann síðan leið sinni áfram, arkaði yfir annan borða og magalenti í öðru steypubaði.

Þessi ágæti maður lét hvorki segjast né var hann tilbúinn að fara nýja leið. Hann taldi sig ekki þurfa upplýsingar um hvert væri skynsamlegt að ganga miðað við ríkjandi aðstæður. Hann ætlaði sér einfaldlega að fara sömu gömlu leiðina þótt aðstæður hefðu breyst.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Nýjasta útspil Vilhjálms
er af þessum toga.

Nýjasta útspil Vilhjálms er af þessum toga. Í stað þess að endurmeta stefnuna í heimi sem hefur tekið stakkaskiptum vill hann verja kerfi ofurvaxta og skuldafjötra sem hefur reynst heimilum og fyrirtækjum þungur baggi. Hann segir á Facebook:

„Þessar svokölluðu „kíkja í pakkann“-viðræður snúast ekki um að semja við ESB um vexti, verðtryggingu eða verðbólgu. Ekkert af þessu er samningsatriði í aðildarviðræðum. Aðildarviðræður eru því ekki „samningaviðræður“ í þeim skilningi að Ísland og ESB setjist niður sem tveir jafnir aðilar og semji frá grunni um hvaða reglur eigi að gilda.“

Þarna leggur Vilhjálmur fram staðhæfingar sem nauðsynlegt er að ávarpa.

Í dag er Ísland aðili að Evrópska efnahagssvæðinu og tekur upp reglur innri markaðar Evrópu án þess að eiga aðkomu að lokaákvörðunum um það regluverk. Við tökum þátt í markaðnum en höfum ekki áhrif á mótun hans. Við bíðum fram á gangi og hinkrum eftir því sem verða skal.

Fyrir þá sem vilja aukin áhrif á stefnumótun sem hefur afdrifarík áhrif á íslenskt samfélag eru aðildarviðræður eðlileg leið til að meta hvort Ísland eigi heima í sameinaðri Evrópu. Það er einmitt tilgangur viðræðna: að kanna kosti, galla og skilmála áður en þjóðin tekur afstöðu.

Annað atriði hjá Vilhjálmi er fullyrðingin um að ekki sé verið að ræða vexti, verðbólgu eða verðtryggingu í aðildarviðræðum.

Vilji Ísland taka upp evru…

Það er vissulega rétt að ekki er samið um tiltekið vaxtastig eða ákveðna verðbólgutölu í aðildarviðræðum. Slíkir þættir eru ekki ákveðnir við samningaborð heldur ráðast af efnahagslegu umhverfi og samkeppni. Viðmiðin eru aftur á móti sett fram við samningaborðið og ber að stefna að þeim ætli þjóðin inn í sameinaða Evrópu.

Hins vegar er ekki þar með sagt að umræða um evruaðild hafi ekkert með vexti eða verðbólgu að gera. Þvert á móti er það eitt af meginatriðunum sem fólk horfir til.

Vilji Ísland taka upp evru þarf landið að uppfylla ákveðin efnahagsleg markmið um verðbólgu, vexti, gengisstöðugleika og stöðu opinberra fjármála. Að því ferli loknu yrði Ísland hluti af evrusvæðinu og peningastefnan mótuð innan Seðlabanka Evrópu. Þar fengi Ísland beina aðkomu að ákvarðanatöku í gegnum eigin seðlabankastjóra, í stað þess að standa alfarið utan þeirra ákvarðana sem hafa grundvallaráhrif á íslenskt hagkerfi.

Munurinn á vaxtastigi innan evrusvæðisins og á Íslandi er fjötrum líkastur. Á evrusvæðinu eru íbúðalán og fyrirtækjalán veitt á kjörum sem íslensk heimili og fyrirtæki geta aðeins látið sig dreyma um: íbúðalánavextir á bilinu 2–4% og fyrirtækjalán á bilinu 3–5%. Á sama tíma eru íslenskir lántakar að greiða vexti sem eru vel norðan við 10%.

Hún snýst um það
hvort Ísland vilji…

Ekki þarf að fjölyrða um hversu íþyngjandi háir vextir eru fyrir heimili og fyrirtæki né hversu neikvæð áhrif þeirra er á samkeppnisstöðu landsins. Það er því eðlilegt að fólk velti því fyrir sér hvort annað fyrirkomulag gæti skilað hagstæðari kjörum. Það er eftir miklu að slægjast fyrir almenning að taka upp evru.

Ef Ísland gengi í Evrópusambandið og tæki upp evru myndu íslenskir bankar starfa á markaði þar sem samkeppni um fjármagn og viðskiptavini væri meiri en nú er. Reynslan frá evrusvæðinu sýnir að vaxtakjör milli landa færist nær hvert öðru, þótt mismunandi áhættumat geti áfram haft áhrif.

Sama á við um verðtrygginguna. Hún er ekki hluti af hefðbundnu fjármálakerfi evrusvæðisins. Aukin samkeppni á fjármálamarkaði myndi einfaldlega eyða verðtryggingunni og færa Íslendingum evruvexti.

Kjarni málsins er sá að umræðan um Evrópusambandið snýst ekki um að semja um tiltekið vaxtastig. Hún snýst um það hvort Ísland vilji taka þátt í stærra efnahags- og öryggissamstarfi sem skapar aðrar forsendur fyrir verðbólgu, vexti, fjármögnun og öryggi en við búum við í dag.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: