- Advertisement -

„Seðlabanki Íslands býr til kreppu“

Þórður Magg skrifaði:

„Til að setja vaxtahækkur SÍ í samhengi í okkar rekstri þá langar mig að taka Vélsmiðju Grundarfjarðar sem dæmi.

Við erum að reisa tvö iðnaðarhús í dag, eitt á Akureyri og annað í Grundarfirði. Samtals 2.400 fermetrar.

Við erum búnir að greiða 359 milljónir í þessum verkum, nú þegar.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Og nú eru mörg verkefni
að sigla í strand.

Við skuldum bankanum 220 milljónir í þessum verkum eins og staðan er í dag.

Vaxtakostnaður á þessum lánum (með lántökugjöldum ofl) er nú 13,28% (með hækkuninni í dag)

Það er vaxtakostnaður upp á 2.434.667kr – á mánuð.

Samt erum við með 40% eigið fé í myndinni.

Heldur einhver að við borgum þetta? Nei, þetta var allt reiknað inn í söluverð. Þessir vextir hækka verðbólgu, lækka hana ekki.

Og nú eru mörg verkefni að sigla í strand. Byggjendur geta ekki staðið undir kostnaði, kaupendur fá ekki lán, ráða ekki við afborganir.

Staðan á Íslandi er þessi; Við höfum sjaldan/aldrei haft fleiri ferðamenn. Við höfum sjaldan/aldrei selt meira rafmagn né á hærra verði. Sjávarútvegurinn okkar er að fá hærra afurðaverð en við höfum nokkurn tímann séð áður.

Í þessum aðstæðum býr Seðlabanki Íslands til kreppu. Hugsið ykkur hvernig staðan verður þegar ytri aðstæður verða vondar.

Ég hélt að ég myndi aldrei segja þessi orð, en það kom að því:

Guð blessi Ísland.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: