- Advertisement -

Að lifa á ósannindum og rifrildinu

Jóhann Þorvarðarson skrifar:

Það virðist því ekki vera Evrópusambandið sem Sólveig óttast mest. Það eru samanburðartölurnar. Þær eru svo hvimleiðar að nenna aldrei að taka þátt í rifrildi. Þær bara sitja þarna og hafa rétt fyrir sér.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, virðist ekki ætla að hætta að vinna gegn þeim hagsmunum sem hún segist berjast fyrir. Um helgina kom hún með enn eitt útspilið í þeirri baráttu þegar hún sagði:

„Það er ekkert sem ég tel Evrópusambandið geta fært verkafólki á Íslandi í skiptum fyrir það sem við höfum nú þegar.“

Maður verður hálf orðlaus af svona fullyrðingum. Reyndar dettur manni helst í hug nokkur af þeim lýsingarorðum sem Sólveig sjálf grípur gjarnan til þegar henni er misboðið. En látum það eiga sig og höldum okkur við staðreyndirnar. Þær hafa nefnilega þann leiðinlega sið að þráast við að falla að pólitískum slagorðum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tökum aðeins tvö dæmi.

Frá aldamótum hefur uppsöfnuð verðbólga á Íslandi verið 255%. Á sama tíma hefur uppsöfnuð verðbólga í Danmörku verið um 62%. Á sama tímabili hafa stýrivextir hér á landi að jafnaði verið um 8%, en aðeins um 2,5% í Danmörku.

Þetta þýðir að íslenskt verkafólk hefur þurft að hlaupa sífellt hraðar bara til að standa í stað. Kaupmátturinn étinn af verðbólgu og launahækkanir gleyptar af vöxtum. Þetta bitnar verst á verkafólki. Ef þetta er kerfið sem ekkert má hrófla við, þá er það dálítið eins og að lofa eldvarnir hússins á meðan allt logar í eldhúsinu.

Það er því hreint út sagt álygum líkast þegar haldið er fram að Evrópusambandið hafi ekkert að færa íslensku verkafólki. Stöðugra verðlag, lægri vextir, aukinn fyrirsjáanleiki fyrir heimilin og sterkur gjaldmiðill eru ekki einhver fræðileg hugmynd. Þetta eru hlutir sem skipta máli við eldhúsborðið, þegar afborgunin hækkar, matarkarfan verður dýrari og launahækkunin gufar upp áður en blekið á kjarasamningnum er þornað.

Bættur hagur verkafólks fæst ekki með rangfærslum, álygum eða írafári. Hann fæst með stöðugra efnahagsumhverfi, lægri vöxtum og verðlagi sem étur ekki upp afrakstur vinnunnar. Þar hefur Danmörk, innan Evrópusambandsins, skilað verkafólki mun betri árangri en Ísland.

Það virðist því ekki vera Evrópusambandið sem Sólveig óttast mest. Það eru samanburðartölurnar. Þær eru svo hvimleiðar að nenna aldrei að taka þátt í rifrildi. Þær bara sitja þarna og hafa rétt fyrir sér.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: