- Advertisement -

Náttúrulega bara augljóslega mjög heimskur maður

Efnahagur:

Jóhann Þorvarðarson skrifar:

Síðan hann var óverðskuldað skipaður seðlabankastjóri af pólitískri ástmey Bjarna Ben, henni Kötu Jak, hefur Ásgeir Jónsson auðgað anda þjóðarinnar með skáldlegum og á stundum augljóslega bara heimskulegum yfirlýsingum.

Hver man til dæmis ekki eftir því árið 2020 þegar hann með mikinn digurbarka lýsti yfir að lágvaxtaumhverfið væri komið til að vera. Þá voru stýrivextir eitt prósent. Svo sneri hann sér við og stýrivextir hófu himnaflug sitt yfir níu prósentin aðeins tveimur árum eftir þessa heimskulegu yfirlýsingu. Í dag eru stýrivextir átta prósent og kennir bankinn öllum öðrum um en sjálfum sér.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Um svipað leyti
sagði hann
verðtrygginguna
dauða.

Ekki benda á mig, segir seðlabankastjórinn. Þetta kvöld var ég að æfa byggingakórinn.

Afleiðingin var taumlaus fasteignamarkaður þar sem íbúðaverð og verðbólga rauk upp úr öllu valdi.

Um svipað leyti sagði hann verðtrygginguna dauða.

Í grein frá Seðlabanka Íslands segir að árið 2022 hafi rúmlega helmingur íbúðalána verið óverðtryggður, sem þýðir að verðtryggð lán voru þá komin undir 50%. Eftir vaxtahækkanirnar 2022 til 2024 snerist þróunin hins vegar við og verðtryggðum lánum fjölgaði á ný. Landsbankinn benti á að í janúar 2024 hefði meirihluti útistandandi íbúðalána aftur verið verðtryggður.

Samkvæmt HMS voru 63% útistandandi húsnæðislána heimila verðtryggð árið 2025. Um mitt árið 2022 var hlutfallið um 44%. Sem sagt, tvær af hverjum þremur krónum í útistandandi íbúðalánum heimila voru verðtryggðar árið 2025.

Það sem gerir þessa sögu sérstaklega athyglisverða er að spár og yfirlýsingar seðlabankastjórans hafa ítrekað farið á annan veg en raunveruleikinn. Lágvaxtaumhverfið átti að vera komið til að vera. Verðtryggingin átti að vera á útleið. Hvorugt gekk eftir. Alls ekki.

Samt talar hann enn af sömu fullvissu og áður. Það er ekki sjálfstraust sem skortir í Seðlabankanum. Vandinn virðist frekar vera tengslin við staðreyndirnar, raunveruleikann.

Þrátt fyrir þessar augljóslega heimskulegu yfirlýsingar seðlabankastjórans lifa verðtryggð lán samt sín allra bestu ár.

Í dag fann Ásgeir seðlabankastjóri hjá sér knýjandi þörf til að sýna okkur enn eina ferðina hvað hann er náttúrulega bara augljóslega mjög heimskur maður. Sagði hann orðrétt um áform ríkisstjórnarinnar um leigubremsu:

„Leigubremsan er náttúrulega bara augljóslega mjög heimskuleg.“

Raunveruleikinn
er allt annar.

Með orðum sínum er hann ekki aðeins að kalla ríkisstjórn Íslands heimska heldur jafnframt stjórnvöld í Danmörku og Svíþjóð sem hafa komið á hömlum gagnvart hækkun leiguverðs.

Sömu sögu er að segja um fjölmörg Evrópulönd. Þýskaland, Frakkland, Spánn, Holland og Írland hafa öll gripið til einhvers konar takmarkana á leigumarkaði. Vestan hafs má finna sambærileg kerfi í Kanada og í mörgum stærstu borgum Bandaríkjanna, þar á meðal New York, San Francisco, Los Angeles og Washington.

Merkilegast við málflutning seðlabankastjórans er að hann talar eins og aðeins tveir valkostir séu í boði. Annað hvort algjört frelsi á leigumarkaði eða alræðisleg verðstýring. Raunveruleikinn er allt annar. Fjölmörg lönd sem Íslendingar bera sig gjarnan saman við hafa í áratugi reynt mismunandi útfærslur á takmörkunum á leiguhækkunum. Sum kerfin hafa gengið vel, önnur verr. En engum dettur í hug að halda því fram að Danir, Svíar, Þjóðverjar, Frakkar, Hollendingar, Bandaríkjamenn og Kanadamenn séu allir haldnir sömu heimsku.

Umræðan snýst ekki um hvort setja eigi einhverjar reglur á leigumarkaðinn heldur hvernig þær eru útfærðar og hvort þær þjóni tilgangi sínum.

Og vart þarf að minna nokkurn mann á mótmælaölduna á Spáni þar sem húsnæðiskostnaður og hækkandi leiga hafa orðið að stórpólitísku viðfangsefni.

Ásgeir áttar sig ekki á því að væntanleg leigubremsa er aðeins einn hluti af stærri lausnarmynd ríkisstjórnarinnar þar sem markmiðið er að losa um húsnæðisfjötra fólks.

Burt með
heimskingjann.

Kannski er það einmitt kjarni málsins. Seðlabankastjóri þarf ekki að vera sammála ríkisstjórn dagsins. Hann á heldur ekki að vera það. En þegar embættismaður í einu valdamesta embætti landsins afgreiðir stefnumál kjörinna stjórnvalda sem „augljóslega heimskulegt“, þá er hann hættur að hljóma eins og óháður seðlabankastjóri og farinn að hljóma eins og pólitískur álitsgjafi.

Og þá vaknar eðlilega spurningin hvort hann skilji sjálfur mörkin þar á milli.

Ásgeir er náttúrulega bara augljóslega mjög heimskur maður og við hin enn heimskari að sætta okkur við svona jólasvein. Ég hygg að forsætisráðherra undirbúi nú breytingar enda gengur ekki að hafa seðlabankastjóra sem telur sig geta kallað stefnumál ríkisstjórnarinnar heimskuleg án þess að það hafi afleiðingar. Hann hefur þegar fengið næg tækifæri til að sýna þjóðinni hversu oft fullyrðingar hans standast illa próf raunveruleikans.

Burt með heimskingjann. En ekki örvænta um örlög Ásgeirs. Jólin eru að koma og þá þarf mann til að lofa börnum því sem aldrei kemur. Á því sviði hefur Ásgeir safnað umtalsverðri reynslu undanfarna áratugi. Hann boðaði jú betri tíð skömmu áður en þjóðarbúið fauk fram af bjargbrúninni.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: