- Advertisement -

Íslenskir rostungar

Erlend áhrif eru enn til staðar og munu alltaf verða, óháð því hvaða skoðun menn hafa á krónunni eða rostungum.

Jóhann Þorvarðarson skrifar:

Slagorðið „Gerum þetta sjálf“ gefur til kynna að Ísland geti staðið utan alþjóðlegra áhrifa. Sagan sýnir þó annað.

Frá landnámi hefur Ísland aldrei verið laust undan erlendum áhrifum eða óháð erlendum viðskiptum. Rostungsveiðar voru til dæmis stundaðar fram á 13. öld og rostungsafurðir þóttu eftirsótt munaðarvara í Evrópu. Þær voru því mikilvægur gjaldeyrisgjafi. Sumir hafa jafnvel líkt þeim við þorsk Sögualdarinnar. Virði rostungsafurða hafði þannig bein áhrif á þjóðarhag. Íslendingar réðu hins vegar ekki einir verðinu, enda voru rostungsveiðar ekki íslensk nýsköpun.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Vaxtalækkanir
virðast því ekki
á næsta leiti.

Gangverð rostungsafurða, líkt og gengi krónunnar í dag, gat ráðist af ytri aðstæðum; veiðum, sjólagi, tískustraumum og styrjöldum, svo eitthvað sé nefnt. Að lokum hvarf rostungurinn af Íslandsmiðum vegna ofnýtingar. Með því missti landið verðmæta útflutningsauðlind sem hafði áhrif á verðmæti annarra gjaldeyrisgjafa. Í nútímanum birtast sömu lögmál með öðrum hætti. Til að styðja við gengi krónunnar þarf að greiða hátt verð í formi hárra vaxta.

Erlend áhrif eru enn til staðar og munu alltaf verða, óháð því hvaða skoðun menn hafa á krónunni eða rostungum.

Peningastefnunefndir bandaríska og breska seðlabankans voru báðar klofnar í afstöðu sinni til vaxtabreytinga á síðustu fundum sínum. Hluti nefndarmanna vildi hækka vexti á meðan aðrir kusu að halda þeim óbreyttum. Vaxtalækkanir virðast því ekki á næsta leiti. Sambærilegt má lesa úr yfirlýsingum Seðlabanka Evrópu.

Japan hefur verið í vaxtahækkunarferli sem ekki sér fyrir endann á. Líkur á hækkun stýrivaxta allt í kringum okkur hafa því aukist verulega. Fjármálamarkaðir eru væntingadrifnir og því hafa vextir þegar tekið að hækka víða um heim.

Fjárfestingakrafa á þýskum ríkisskuldabréfum til tíu ára hefur ekki verið hærri síðan árið 2011 og nálgast nú þrjú og hálft prósent. Svipaða sögu má segja af Frakklandi. Ávöxtunarkrafa japanskra ríkisskuldabréfa fór nýverið í fyrsta sinn í þrjátíu ár yfir þrjú prósent. Bresk gullrandarbréf bera nú yfir fimm prósenta vexti, eitthvað sem ekki hefur sést síðan á hrunaárinu 2008. Vestanhafs hafa vextir á langtímaskuldabréfum einnig verið á hraðri uppleið, bæði í Bandaríkjunum og Kanada. Meira að segja Sviss hefur ekki farið varhluta af þessari þróun.

Kjarni málsins er
sá að ekki er hægt að
tala sig í gegnum
það vaxtaálag

Ísland hefur heldur ekki farið á mis við vaxtahækkanirnar enda búum við í samtvinnuðum heimi. Ávöxtunarkrafa á tíu ára ríkisskuldabréfum hefur hækkað um nær eitt prósentustig á einu ári og stendur nú í sjö prósentum. Til samanburðar er ávöxtunarkrafan langt undir fjórum prósentum í Finnlandi og á evrusvæðinu. Í Danmörku eru vextirnir þrjú prósent.

Íslenska vaxtaálagið nemur því allt að fjórum prósentustigum hjá traustustu lántakendum í íslenskum krónum. Miðað við opinberar skuldir samkvæmt tölum Hagstofunnar myndi upptaka evrunnar spara hinu opinbera um 167 milljarða króna í vaxtakostnað á ári. Til samanburðar nam kostnaður hins opinbera við heilbrigðiskerfið 346 milljörðum króna á síðasta ári.

Þennan sparnað má einnig setja í samhengi við tekjuskatt einstaklinga. Hægt væri að lækka hann um 760 þúsund krónur á ári.

Hefði þjóðaratkvæðagreiðslan nýliðna farið á annan veg og aðildarviðræður í kjölfarið leitt til upptöku evrunnar, væri þar um verulega búbót að ræða. Jafnframt myndi fjárhagslegur jöfnuður aukast þegar skuldafjötrarnir losnuðu. Þá má einnig færa fyrir því sterk rök að jafnrétti kynjanna myndi styrkjast með evrunni.

Kjarni málsins er sá að ekki er hægt að tala sig í gegnum það vaxtaálag sem hér hefur verið rakið, þótt reynt hafi verið að sannfæra þjóðina um annað í kosningabaráttunni. Við lifum í samhangandi heimi og dugar því ekkert að segja „Gerum þetta sjálf“.  Ef við höldum áfram með krónuna gæti fleira en rostungurinn á endanum heyrt sögunni til á Íslandi.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: