Stefán Ólafsson, prófessor emeritus við HÍ, skrifaði í Heimildina:
Hér að neðan eru aðeins tveir stuttir kaflar úr fínni grein Stefáns.
Hér er sá fyrri:
„Þá vitum við það. Þetta þýðir að almennt þykir skynsamlegra í hagfræði að hækka skatta á það sem gengur illa eða þokkalega frekar en það sem gengur vel. Frekar mætti hækka skatta á lægri og millitekjur en hærri tekjur. Frekar skuli hækka skatta á litlar eignir og skuldir en síður á miklar skuldlausar eignir.
Þarna er komin skýring á því hvers vegna skattbyrði þeirra sem eiga miklar eignir og hafa mjög miklar fjármagnstekjur er lægri en skattbyrði venjulegs launafólks og lífeyrisþega. Ekki bara á Íslandi, heldur er það algengt víða á Vesturlöndum, þar sem sömu hagfræðiáhrifa hefur gætt.“
Og sá síðari:
„Nú leggja þessir hagfræðingar til að vinnumarkaðsmódelinu á Íslandi verði breytt til að veikja verkalýðshreyfinguna og lækka launastig almennings í landinu. Þannig mætti auka hagnað „þeirra sem vel gengur“, þ.e. stórra atvinnurekenda og fjármagnseigenda. En í þessu samhengi vill gleymast að góður kaupmáttur almennings stuðlar að auknum hagvexti, því þá geta fyrirtækin selt þjóðinni meira og vaxið hraðar.“