
Jóhann Þorvarðarson skrifar:
Með andstöðu sinni við aðildarviðræður við Evrópusambandið stendur Sjálfstæðisflokkurinn því gegn mikilvægum hagsmunum Íslands og sættir sig um leið við að tækifæri til aukinnar atvinnu og verðmætasköpunar fari forgörðum.
„Aðild Íslands að Evrópusambandinu myndi afnema tolla á útflutt sjávarfang sem fellur utan tollfrjálsra kvóta. Það myndi ekki aðeins styrkja samkeppnisstöðu íslensks sjávarútvegs á alþjóðlegum mörkuðum, heldur einnig hafa jákvæð áhrif á atvinnu og verðmætasköpun innanlands. Tollfrjáls aðgangur að verðmætasta markaði heims myndi draga úr hvata til að flytja óunninn sjávarafla úr landi til frekari vinnslu, þar sem sá kostur yrði að verulegu leyti óþarfur þegar tollahindranir hyrfu. Þannig gæti aukinn hluti virðisaukans orðið til innanlands, með tilheyrandi ávinningi fyrir atvinnulíf og samfélag.
Með andstöðu sinni við aðildarviðræður við Evrópusambandið stendur Sjálfstæðisflokkurinn því gegn mikilvægum hagsmunum Íslands og sættir sig um leið við að tækifæri til aukinnar atvinnu og verðmætasköpunar fari forgörðum.
Á dögunum bárust fréttir af því að Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum hefði í annað sinn fjárfest í saltfiskverksmiðju í Portúgal til að færast lengra fram í virðiskeðju saltfiskframleiðslunnar. Tollamúrar Evrópusambandsins skipta þar verulegu máli og færa má sterk rök fyrir því að slík fjárfesting hefði líklega verið ónauðsynleg ef Ísland væri nú þegar aðili að sambandinu. Þá hefðu arðsemisútreikningar fyrirtækisins væntanlega litið öðruvísi út og stærri hluti virðisaukans af saltfiskframleiðslunni orðið til hér á landi fremur en í Portúgal.
Það má því segja að kostnaðurinn við að standa utan tollamúra Evrópusambandsins stuðli að því að verðmætasköpun og störf flytjist úr landi. Vinnslustöðin er tæplega eina dæmið um slíkt. Sambærileg sjónarmið eiga að öllum líkindum við um fleiri fjárfestingar íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja erlendis.
Því varðar það mikla hagsmuni landsbyggðarinnar að Ísland fái tækifæri til að ljúka aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Með því gætu skapast betri skilyrði til að halda verðmætasköpun, fjárfestingu og störfum innanlands. Þess vegna er mikilvægt að segja já 29. ágúst við áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið.“