
Jóhann Þorvarðarson skrifar:
Pólitík snýst hins vegar ekki um stöðuna í dag heldur hvert þróunin stefnir. Það væri því glappaskot ef Íslendingar lokuðu augunum fyrir rás atburða í Noregi.
Við höfum lengi litið á Noreg sem óhagganlegt akkeri í Evrópumálum. Norðmenn ætluðu aldrei í Evrópusambandið. Þannig var sagan sögð. En nú er akkerið laust frá botni og marar í hálfu kafi.
Stuðningur við aðild að Evrópusambandinu hefur aukist verulega í Noregi. Þróunin er skýr. Pólitíski vindurinn hefur snúist. Það sem áður þótti óhugsandi er orðið raunhæfur valkostur. Pólitík snýst hins vegar ekki um stöðuna í dag heldur hvert þróunin stefnir. Það væri því glappaskot ef Íslendingar lokuðu augunum fyrir rás atburða í Noregi.
Segi Íslendingar nei í ágúst gætu Norðmenn á næstu árum tekið forystuna í Evrópumálum á Norður-Atlantshafi. Þá stæðum við frammi fyrir kaldhæðnislegri stöðu. Þjóðin sem gekk á hönd Noregskonungi með Gamla sáttmála sæi eftir um sjö aldir Norðmenn taka sæti við háborð Evrópusambandsins. Við stæðum á hleri frammi á gangi.
Kosningin 29. ágúst snýst því ekki um afdalamennsku eða fullveldisafsal.
Það minnir dálítið á sveitasímann forðum daga þegar bóndi hringdi til nágrannans til að ræða viðkvæm fjölskyldumál. Eftir nokkra stund heyrðist hósti á línunni.
„Hver er þarna?“ spurði bóndinn.
Þögn.
Síðan heyrðist rödd:
„Ég veit ekki hverjir þið eruð, en talið aðeins hærra. Það heyrist svo illa á bænum hérna megin við heiðina.“
Sumir virðast telja að það sé fullkomlega ásættanlegt hlutverk að bíða úti og sjá hvað aðrir ákveða. Það er vissulega stefna. Hún kallast þó ekki áhrif. Þannig er staða ríkja sem standa utan við ákvarðanir. Þau heyra eitthvað, en hafa ekki áhrif á niðurstöðuna.
Við skulum því ekki vera röngu megin við heiðina. Stöndum ekki hjá heldur myndum bandalög og verjum íslenska hagsmuni þar sem ákvarðanirnar eru teknar.
Kosningin 29. ágúst snýst því ekki um afdalamennsku eða fullveldisafsal. Og enn síður um orð sem sögð voru fyrr á öldum. Tjáning til forna átti við aðrar aðstæður, en nútíminn kallar á annað viðbragð.
Sveitasíminn er horfinn, en sumir virðast sáttir við að vera á línunni frekar en í samtalinu.