- Advertisement -

Sauðfjárbændur eru jafnir bönkunum

Jóhann Þorvarðarson skrifar:

Í hvert sinn sem íslensku bankarnir birta afkomutölur rýkur hitinn í samfélaginu upp í hættumörk. Landsmenn kvarta, með réttu, yfir samkeppnisleysi. Bölva háum vöxtum og spyrja enn á ný hvers vegna Ísland sé ekki fyrir löngu búið að taka upp evru. Síðan sest rykið, þar til næsta tilkynning um hækkun þjónustugjalda og vaxtamunar skellur á. Gróðahringrásin heldur áfram að snúast af ótrúlegum krafti og neytendur og smærri fyrirtæki sitja eftir með reikninginn.

Árleg arðsemi eigin fjár hjá bönkunum var að jafnaði um 12% á árunum 2021 til 2024, eins og stöplaritið sýnir. Á flestum mælikvörðum telst það afburðaárangur. En bankarnir eru ekki þeir einu sem njóta þess að þurfa ekki að hafa miklar áhyggjur af samkeppni. Sauðfjárbændur, vel varðir af tollamúrum, hafa líka staðið sig prýðilega. Árleg arðsemi eigin fjár yfir sama tímabil var á pari við bankana. Enn á ný eru það neytendur sem standa straum af kostnaðinum sem fylgir takmarkaðri samkeppni.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Barlómurinn hefur
verið svo hávær…

Þetta kemur mörgum á óvart. Áratugum saman hefur almenningi verið sagt að sauðfjárbændur búi við svo þröng kjör að þeir séu vart nema einni sláturtíð frá fjárhagslegri tortímingu. Barlómurinn hefur verið svo hávær að fólk á mölinni hefur beinlínis fundið til með sauðfjárbóndanum. Á sama tíma hefur það látið sig hafa að greiða hátt verð fyrir lambakjöt sem síðan smitast inn í verðlag og að lokum í vextina. Í þessum áróðri þá hefur Gosi verið ansi fyrirferðarmikill.

Opinberar tölur segja hins vegar allt aðra sögu. Stöplaritið bendir síður til sults og seyru heldur býsna álitlegrar afkomu hjá sauðfjárbændum.

Nú hyggjast Bændasamtökin leggja af stað í hringferð um landið með Gosa við stýrið. Markmiðið er að sannfæra landsmenn um að ómögulegt sé að semja hagstætt við Evrópusambandið, þrátt fyrir yfirlýsingar fulltrúa sambandsins um hið gagnstæða. Á sama tíma hefur aðalsamningamaður Finna í landbúnaðarmálum lýst jákvæðri reynslu Finnlands af samskiptum og samningaviðræðum við Evrópusambandið. Það virðist þó ekki falla vel að barlóminum.

Vonandi láta landsmenn ekki blekkjast. Tilgangurinn er nefnilega ekki að verja bændur gegn sulti heldur að verja kerfi sem tryggir áfram tollamúra, ríkulegan stuðning og góða arðsemi. Sauðfjárbændur lifa almennt ekki við sult og seyru. En eins og margir aðrir sem njóta góðrar stöðu vilja þeir síður sjá samkeppnina banka upp á.

Segjum já fyrir upplýsandi umræðu!


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: