- Advertisement -

Stíga trylltan vaxtadans

Jóhann Þorvarðarson skrifar:

Vaxtapartýið heldur áfram. Seðlabanki Íslands hækkaði stýrivexti enn eina ferðina í dag og standa þeir nú í 8 prósentum, eins og stöplaritið sýnir glögglega. Á sama tíma eru vextir á evrusvæðinu aðeins 2,4 prósent.

Þessu fagna væntanlega Sólveig Jónsdóttir og Vilhjálmur Birgisson með trylltum sigurdansi, jafnvel svo kröftugum að parketið láti á sjá. Með afstöðu sinni til Evrópusambandsins standa þau vörð um fyrirkomulag sem hefur skilað íslenskum heimilum og fyrirtækjum mun hærri vöxtum en þekkist hjá nágrannaþjóðum okkar. Á þessari öld hafa stýrivextir á Íslandi að jafnaði verið margfalt hærri en á evrusvæðinu. Munurinn birtist beint í miklu hærri greiðslubyrði heimila og rekstrarkostnaði.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Verkalýðsforysta sem segist berjast fyrir hagsmunum launafólks…

Svo staðföst eru þau í þessari sannfæringu að þau virðast ekki einu sinni vilja kanna hvaða möguleikar gætu falist í viðræðum við Evrópusambandið. Slíkt gæti reynst óþægilegt ef í ljós kæmi að Ísland gæti samið um hagstæðari kjör en andstæðingar aðildar hafa haldið fram.

Það má nefnilega ekki taka slíka áhættu. Öruggara virðist að halda sig við kerfi þar sem heimilin greiða hæstu vextina og fyrirtækin búa við verstu lánakjörin. Á meðan eru fjölskyldur um land allt farnar að telja hverja krónu sem fer í kaffibollann og fresta mikilvægum ákvörðunum um húsnæði.

Verkalýðsforysta sem segist berjast fyrir hagsmunum launafólks en vill ekki einu sinni kanna hvaða ávinningur gæti falist í Evrópuviðræðum á erfitt með að sannfæra aðra um að hún sé að skoða bestu kostina fyrir launafólk.

Ekki er laust við að Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir og aðrar gegnar hetjur verkalýðsbaráttunnar hafi snúið sér við í gröfinni yfir þeim ósóma sem nú er boðinn fram í nafni hagsmuna launafólks.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: