Jóhann Þorvarðarson skrifaði:
„Hann byrjar alla daga á sama tuðinu. Kvartar yfir sömu hlutunum með slíkri nákvæmni að maður grunar að hann hafi æft sig fyrir framan spegil. Ef þú stingur upp á lausn verður hann fúll. Hann vill nefnilega ekki laga vandamálið. Hann vill eiga það.
Uppáhaldssetningin hans er: „Við verðum að lækka vexti.“ Hann hefur endurtekið hana svo oft að maður býst við að RÚV fari bráðum að setja hana í textavarpið sem veðurspá.
Og þegar hann er spurður af hverju hann geri ekki eitthvað öðruvísi svarar hann: „Ég er ekkert að tuða.“ Sem er auðvitað nákvæmlega það sem maður sem er að tuða myndi segja.
Þegar nýtt fjárlagafrumvarp var kynnt í dag hófst sami söngurinn enn á ný. Sama platan. Sama lagið. Sama rispa á vínylnum. Aftur var lausnin sú sama: „Lækka vexti.“
Á sama tíma hafnar hann evrunni, sem gæti samkvæmt ýmsum rökum dregið úr þeim vanda sem hann kvartar mest yfir. En þar liggur einmitt vandinn. Ef vandamálið hyrfi, hvað ætti hann þá að tala um?
Það virðist nefnilega sem hann vilji ekki leysa vandamálið. Hann vill varðveita það, vökva það og hugsa um það eins og stofublóm. Því sumir lifa ekki fyrir lausnirnar. Þeir lifa fyrir tuðið.
Ég hef áður bent á í tveimur greinum hér á Miðjunni að hið opinbera myndi spara árlega 167 milljarða króna með vaxtaprósentu sem tíðkast á evrusvæðinu og verkakonan myndi spara sér 51 milljónir króna á líftíma síns íbúðaláns. Ég skora á ykkur að lesa þessar greinar, en slóð á þær má finna hér að neðan.“