- Advertisement -

Grátbroslegur Seðlabankastjóri

Samkvæmt frétt frá Kjarnanum frá 3. mars á þessu ári þá hækkuðu mánaðarlaun forstjóra þeirra 20 félaga sem skráð voru á aðalmarkað Kauphallar Íslands á síðasta ári að meðaltali um 444 þúsund krónur og voru þeir með rúmlega 5,6 milljónir króna í mánaðarlaun.

Vilhjálmur Birgisson, formaður VLFA og SGS, skrifar:

Að hugsa sér þessi ummæli frá seðlabankastjóra um að hagvaxtaraukinn, sem kemur til framkvæmda um næstu mánaðamót, skuli ekki koma sér vel!

En í Lífskjarasamningnum var samið um svokallaðan hagvaxtarauka og nú liggur fyrir að hagvöxtur pr. mann hækkaði fyrir árið 2021 um 2,53% milli ára. Þessi hækkun á hagvexti tryggir hækkun samkvæmt lífskjarasamningnum á mánaðarlaunataxta um 10.500 kr. og hækkun á almenn laun um 7.875 kr. á mánuði skv. áðurnefndum samningi.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Hvernig á verkafólk á hinum almenna vinnumarkaði að takast á við verðlagshækkanir á öllum sviðum…

Það er svo grátbroslegt að sjá seðlabankastjóra agnúast yfir 10.500 kr. launahækkun hjá lágtekjufólki en segja nánast ekkert yfir stjarnfræðilegum hækkunum á mánaðarlaunum hjá hinum ýmsu forstjórum.

En samkvæmt frétt frá Kjarnanum frá 3. mars á þessu ári þá hækkuðu mánaðarlaun forstjóra þeirra 20 félaga sem skráð voru á aðalmarkað Kauphallar Íslands á síðasta ári að meðaltali um 444 þúsund krónur og voru þeir með rúmlega 5,6 milljónir króna í mánaðarlaun.

Hvernig á verkafólk á hinum almenna vinnumarkaði að takast á við verðlagshækkanir á öllum sviðum og sem dæmi þá hefur aðili á leigumarkaði sem leigir á 250 þúsund á mánuði þurft að þola 16.750 króna hækkun á leigu vegna hækkunar á vísitölunni.

Ég tel að seðlabankastjóri eigi að byrja á því að gagnrýna af krafti þær gríðarlegu launahækkanir hjá efri lögum samfélagsins áður en hann gagnrýnir örlitlar launahækkanir sem verkafólk er að fá sem hrökkva skammt upp í allar þær kostnaðarhækkanir sem dynja á almenningi um þessar mundir.

Einnig væri ráðlegt að gagnrýna þær gríðarlegu arðgreiðslur sem nú eiga sér stað til eigenda og fjárfesta fyrirtækja en áætlað er að þær muni nema 200 milljörðum í ár.

Elsku Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, byrjaðu að gagnrýna þessa þætti áður en þú finnur að 10.500 kr. hækkun til handa launafólki. Meðan þú ekki gerir það er ekki hægt annað en að segja að öll þín gagnrýni á hagvaxtaraukann sé grátbrosleg hræsni!


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: