- Advertisement -

Bensínverð fallið um þriðjung

Neytendavaktin Verð á bensíni hefur ekki verið lægra síðan á árinu 2007, það er í Bandaríkjunum. „Meðalverð á hvert gallon þar í landi er nú 2,06 dollarar, sem útleggst um 70 krónur á hvern líter. Það er næstum þrisvar sinnum lægra verð en hér á landi,“ samkvæmt frétt Vísis. Þar í landi hefur verðið lækkað um 35 prósent á þessu ári.
Vísir segir: „Dísilolía í Bandaríkjunum hefur lækkað enn meira í ár en bensín, eða um 48%. Hún er þó dýrari en bensínið og kostar 2,48 dollara gallonið, eða um 84 krónur á hvern líter. Eldsneytisverð er þó ekki alls staðar það sama í Bandaríkjunum og í Michigan er það að meðaltali lægst, eða á 1,80 dollara hvert gallon (62 kr. á líter). Gallon er 3,7854 lítrar.

Eldsneytisverð er almennt lægst í miðvesturríkjum landsins. Íbúar á Hawaii eru ekki alveg eins kátir með bensínverðið, en þar kostar það að meðaltali 2,80 dollara gallonið, 2,69 dollara í Kaliforníu og 2,53 dollara í Nevada. Þessi þróun á verði eldsneytis hefur hægt á sölu Hybrid og Plug-In-Hybrid bíla í Bandaríkjunum, en sala þeirra féll um 27% í síðasta mánuði borið saman við sama mánuð í fy rra.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: