- Advertisement -

Bergþór sakar Kristrúnu um ósannindi

„Það ligg­ur núna fyr­ir að menn hafa orðið marg­saga um það hvernig upp­lýs­ing­arn­ar fóru á milli.“

Bergþór Ólason.

„Það stenst enga skyn­sem­is­skoðun að þá hafi ráðherr­arn­ir tveir átt fund í for­sæt­is­ráðuneyt­inu en þetta mál ekki verið nefnt á nafn,“ seg­ir Bergþór. „Það er ein­hver ósögð saga þarna.“

Þetta er texti af mbl.is. Bergþór er þarna að tala um hinn furðulega og langa fund í stjórnskipunar- og eftirlitsefnd með Kristrúnu Frostadóttur. Fundur var haldinn í gærmorgun og var sjónvarpað frá fundinum.

Bergþór seg­ir for­sæt­is­ráðherra hafa gengið „býsna hart fram“ í því að skilja við málið þannig að Ólöf Björns­dótt­ir, það er kon­an sem sendi for­sæt­is­ráðuneyt­inu er­indið er varðaði Ásthildi Lóu, væri að segja ósatt um beiðni sína um trúnað í síma­sam­skipt­um sín­um.

Málið hafi orðið hápóli­tískt strax…

Kristrún sagði ítrekað á fundinum að aldrei hafi verið farið fram á trúnað eða honum lofað.

„Það ligg­ur fyr­ir að það eru eng­ar staðfest­ing­ar í þeim efn­um sem hafa verið lagðar fram eða mögu­legt er að leggja fram í ljósi þess að sím­töl­in eru ekki tek­in upp,“ seg­ir Bergþór.

Bergþór seg­ir enn­frem­ur við mbl.is að: „ábyrgðarflótt­ann“ hafa verið býsna áber­andi hjá for­sæt­is­ráðherra í mál­inu.

„Svona í ljósi þess að það mál sem við stönd­um nú frammi fyr­ir er til að miklu leyti til­komið vegna upp­lýs­inga sem bár­ust frá for­sæt­is­ráðuneyt­inu til mennta­málaráðherra. Mál sem að bréf­rit­ari hafði rétt­mæt­ar vænt­ing­ar um trúnað gagn­vart. Málið hafi orðið hápóli­tískt strax með þeim viðbrögðum sem að for­sæt­is­ráðherra og henn­ar fólk sýndi í mál­inu.“

„Það ligg­ur núna fyr­ir að menn hafa orðið marg­saga um það hvernig upp­lýs­ing­arn­ar fóru á milli. Það ligg­ur fyr­ir að þess­um upp­lýs­ing­um var deilt áfram af aðstoðar­manni for­sæt­is­ráðherra,“ segir á mbl.is.

Bergþór, og ekki síður Vilhjálmur Árnason, formaður nefndarinnar, þráspurðu forsætisráðherra sem svaraði ítarlega öllu sem að henni var beint. Samt sakar Bergþór hana um að halla sannleikanum í þessu skrýtna máli.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: