- Advertisement -

Bjarni Ben kominn í bissnessinn

„Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, er orðinn hluthafi í fyrirtæki fjölskyldu sinnar, Alfa hf.,“ segir í frétt á heimildin.is.

„Samkvæmt nýbirtum ársreikningi félagsins fyrir 2025 átti Bjarni 9,46% hlut í lok árs í fyrra.

Hagnaður Alfa í fyrra nam rúmum 1,2 milljörðum króna í samanburði við 274 milljóna króna hagnað árið 2024. „Á árinu 2025 seldi dótturfélag Alfa alla eignarhluti sína í Tékklandi bifreiðaskoðun og skýrir það að miklu leyti hækkun á milli ára í afkomu dóttur- og hlutdeildarfélaga,“ segir í ársreikningnum.

Alfa greiðir tæpar 198 milljónir króna í arð til hluthafa sinna í ár. Samkvæmt þessu fær Bjarni tæpar 19 milljónir króna í sinn hlut.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Sjá nánar á heimildin.is


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: