- Advertisement -

Bjarni segir Samherjamálið ekki valda „orðsporsáhættu“ / Enginn hefur hringt

„Ég hef aldrei fengið símtal, ábendingu, umkvörtun frá nokkrum einasta aðila sem heldur því fram við mig að ásakanir um lögbrot í þessu máli séu að valda einhverjum verulegum vandræðum fyrir íslenskan útflutning eða á markaði annars staðar,“ sagði Bjarni Benediktsson í Alþingi.

Það sem við gerum þegar upp koma ásakanir um lögbrot er að rannsaka. Ég ætla ekki að láta draga mig inn í umræðu um meint brot, einhverjar vangaveltur um það hvort ásakanir um brot sem kannski var framið muni mögulega skaða orðspor annarra fyrirtækja. Ég held ekki.

„Getur háttvirtur þingmaður séð fyrir sér að þetta fyrirtæki sem er með starfsemi í Frakklandi, Þýskalandi, um allan heim, sé að valda því að þýsk fyrirtæki almennt séu bara að lenda í orðsporsvanda? Ég held ekki. Það eru þýsk og frönsk fyrirtæki sem er í eigu þessa sama félags og háttvirtur þingmaður setur hér á dagskrá, sem varla veldur verulegri orðsporsáhættu,“ sagði Bjarni þegar hann svaraði Oddnýju Harðardóttur.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: