- Advertisement -

Breyttir tímar á Íslandi

„Og stjórnmálamönnum sem ganga erinda þeirra svo grímulaust að þeir mæta í röðum í viðtöl hjá fjölmiðlum til þess að verja gallsúra auglýsingaherferð hagsmunasamtaka sjávarútvegsins eins og hún væri þeirra eigin, auglýsingaherferð sem er svo augljóslega lituð af örvæntingu, hroka og algeru tengslarofi við fólkið í landinu.“

Ása Berglind Hjálmarsdóttir.

„Það eru breyttir tímar á Íslandi. Gömlu helmingaskiptaflokkarnir sitja ekki lengur við stjórnvölinn sem verður að teljast til tíðinda því það hefur aðeins gerst samtals í sex ár frá 1944. Í 80 ár hafa þessir flokkar, oftast saman en líka hvor í sínu lagi, meira og minna stjórnað landinu,“ sagði Ása Berglind Hjálmarsdóttir Samfylkingu, á Alþingi.

En nú er nýtt upphaf, upphaf sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur leiðir með flokkum sem forgangsraða almenningi á Íslandi, ekki sérhagsmunum fárra. Þetta veldur óhjákvæmilegum titringi meðal auðvaldsins í landinu, hagsmunasamtökum sem starfa í þeirra þágu og stjórnmálamönnum sem ganga erinda þeirra svo grímulaust að þeir mæta í röðum í viðtöl hjá fjölmiðlum til þess að verja gallsúra auglýsingaherferð hagsmunasamtaka sjávarútvegsins eins og hún væri þeirra eigin, auglýsingaherferð sem er svo augljóslega lituð af örvæntingu, hroka og algeru tengslarofi við fólkið í landinu,“ sagði Ása Berglind.

„Þar birtist almenningi alger vanvirðing við sögu fjölmargra byggðarlaga á landsbyggðinni sem misstu tilverugrundvöll sinn þegar útgerðirnar ryksuguðu í burtu kvótann og lokuðu hverri fiskvinnslunni á eftir annarri með vel þekktum afleiðingum. Hvenær er nóg nóg? hefur fólkið í landinu spurt sig þegar fréttir eru sagðar af arðgreiðslum kvótahafa, arði sem er byggður á sameiginlegri auðlind í eigu fólksins í landinu. Það þarf ekki annað en að skoða lista yfir auðugasta fólkið sem hér býr til að átta sig á því að það er borð fyrir báru hjá stóru útgerðum landsins. Ef það dugir ekki til er hægt að líta til annarra talna eins og rekstrarhagnaðarhlutfalls sjávarútvegs, sem er hagnaður eftir allar fjárfestingar og greiðslur á gjöldum. Rekstrarhagnaðarhlutfall sjávarútvegs var að meðaltali 24% á tímabilinu 2014–2023 samkvæmt rekstraryfirliti sjávarútvegsins frá Hagstofu Íslands. Ef veiðigjaldið hefði verið 7,5 milljörðum krónum hærra líkt og áætlað er, hefði rekstrarhagnaðarhlutfallið verið að meðaltali um 21% á sama tíu ára tímabili. Til samanburðar var hlutfallið 9% yfir sama tímabil í hagkerfinu almennt. Rekstrarhagnaðarhlutfallið verður þannig áfram meira en tvöfalt hærra í sjávarútvegi heldur en gengur og gerist almennt.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Og Ása Berglind var ekki hætt:

Hvenær er nóg nóg?

„Sú mikla samþjöppun sem kvótakerfið hefur leitt af sér hefur búið til risa í sjávarútvegi sem hafa safnað að sér gríðarlegum kvóta. Það eru þessi fyrirtæki sem munu greiða uppistöðuna í leiðréttu veiðigjaldi. Greining atvinnuvegaráðuneytisins sýnir að tíu stærstu útgerðirnar munu borga 67% þeirra og 30 stærstu munu borga 90%. Litlum og meðalstórum útgerðum verður hlíft með gríðarlegri hækkun á frítekjumarki.

Skoðanakannanir sýna svart á hvítu að fólkið í landinu styður þær hugmyndir sem hér eru bornar á borð. Rúmlega 80% þjóðarinnar, átta af hverjum tíu íbúum landsins, styðja það að útgerðin greiði hærri veiðigjöld fyrir sameiginlegar auðlindir þjóðarinnar. Meira að segja 60% kjósenda Sjálfstæðisflokksins eru á þeirri skoðun. Það kom líka glögglega fram í pistli Elíasar Péturssonar, fyrrum bæjarstjóra Fjallabyggðar, sem birtist á samfélagsmiðlum, að það eru ekki bara einhverjir vinstri villingar sem sjá sanngirnina og réttlætið í leiðréttum veiðigjöldum. Það sagði hann, með leyfi forseta:

„Ég vil taka fram að ég hef verið Sjálfstæðismaður allt mitt líf. Nú líður senn að því að þing komi saman að nýju eftir gott páskafrí og ræði hið sanngjarna afgjald kvótahafa til þjóðarinnar. Mig grunar að þingmenn Sjálfstæðisflokks séu nú að hlaða í málþóf í þágu kvótahafanna og aðra viðlíka vanvirðu við lýðræðið. Mér þætti miður ef grunur minn reynist réttur, en óttast það. Ef svo reynist þá sannast enn að lífið er endalaus uppspretta reynslu sem kallar reglulega á endurskoðun eldri sjónarmiða.“

Þjóðin er með okkur…

Þjóðin er með okkur í þessu máli, enda eru tillögurnar bæði sanngjarnar og réttlátar. Ef háttvirtir þingmenn í stjórnarandstöðu ætla að standa hér í ræðustól Alþingis og verja sérhagsmuni auðvaldsins fyrir framan alþjóð klukkutímunum saman áður en þetta mál kemst í þinglega meðferð þá verði þeim að góðu. Við ætlum hins vegar að sjá til þess að fólkið í landinu fái greitt sanngjarnt og eðlilegt gjald fyrir auðlind sem það sannarlega á. Hún er nefnilega ekki í eigu útgerðarinnar. Hún er að leigja hana af íslenskri þjóð. Við ætlum að nýta þá fjármuni sem verða til með hækkun veiðigjalds í lífsnauðsynlega uppbyggingu á vegakerfi landsins, vegakerfi sem helmingaskiptaflokkarnir hafa ekki haft burði til að viðhalda og byggja upp í gegnum árin. Þannig ætlum við að halda áfram að standa með almannahagsmunum, með venjulegu fólki í landinu en ekki sérhagsmunum, því það eru allir löngu komnir með nóg af því.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: