- Advertisement -

Brynjar er ósammála Seðlabankastjóra

„Ég hef alltaf haft miklar mætur á seðlabankastjóra og hef enn. Hann er skemmtilegur maður og það er alltaf gaman á nefndarfundum Alþingis þegar hann mætir. Hann hefur vit og er skýr og skorinorður þótt ég heyri ekki alltaf allt sem hann segir. Eins og góðum bankastjóra sæmir ver hann sitt starfsfólk og það myndi ég gera líka,“ skrifar Brynjar Níelsson á Facebook.

„Ég er hins vegar ósammála seðlabankastjóra að embættismenn þurfa einhverja sérstaka vernd í lögum, umfram sem nú er, til að verja þá fyrir vondu ríku körlunum. Embættismönnum er falið mikilvægt vald sem getur haft veruleg áhrif á líf, heilsu og afkomu okkar allra. Slíkt vald er vandmeðfarið. Eina vörn borgarana er réttarvörslukerfið og dómstólar ef þeir telja stjórnvöld misfara með valdið,“ bætir þingmaðurinn við.

Brynjar vill því að embættismenn séu persónulega ábyrgir fyrir því sem þeir gera í embættisstörfum sínum.

„Við erum fyrst í vondum málum ef undanskilja á embættismenn ábyrgð eða koma í veg fyrir að almenningur og félög geti leitað réttar síns gagnvart valdinu. Öll eigum við rétt hvort sem við erum fátæk eða rík eða tengjumst einhverjum hagsmunum,“ endar hann skrifin sem eru ögn lengri en það sem birt er hér.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: