- Advertisement -

Býr pylsuendinn hjá Viðskiptaráði?

„Einnig eru kröfur um skattfrelsi lágmarkslauna.“

Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, mundar lyklaborðið í dag. Tilefni þess er staðan á vinnumarkaði. Þar er að finna þessa fínu setningu Konráðs: „Rúsínan í pylsuendanum er svo að þessar tillögur byggja á því að enginn skuli vera undir dæmigerðu neysluviðmiði félagsmálaráðuneytisins.“

Það meiri fjandans frekjan í þessu fátæka fólki að halda að það eigi að geta unnið fyrir nauðþurftum.

Þetta er alls ekki allt: „Einnig eru kröfur um skattfrelsi lágmarkslauna.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ekki minnkar heimtufrekjan. Hver á að borga lækkun veiðigjalda, lægstu fjármagnstekjuskattinn og allt hitt? Þau ríku kannski? Kanntu annan.

Ekki er bjartsýninni fyrir að fara í Viðskiptaráði: „Rétt eins og bölsýni var alltumlykjandi í janúar 2009 er auðvelt að vera bölsýnn núna í janúar 2019 þegar horft er á yfirstandandi kjaraviðræður og hvernig hefur þykknað upp í efnahagslífinu.“

Hér er hægt að lesa skrif Konráðs í heild.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: