- Advertisement -

Ef ekki væri þetta svindl og svínarí

Vilhjálmur Birgisson skrifar:

Vilhjálmur Birgisson:
Þessi skepnuskapur útgerðarmanna gerir það að verkum…


„Hvernig væri fyrir þessu sömu sveitarfélög að láta gera skýrslu um tekjutap sveitarfélaganna vegna þess að útgerðarfyrirtæki sem eru með veiðar og vinnslu á sömu hendi greiða að meðaltali 226% minna fiskverð fyrir makríl en greitt er fyrir makríl í Noregi? Þessi skepnuskapur útgerðarmanna gerir það að verkum að tekjur uppsjávarmanna verða mun lægri fyrir vikið, sem þýðir að stórar upphæðir í formi útsvarstekna tapast. Einnig verða hafnarsjóðir vítt og breitt um landið fyrir tekjutapi vegna þess að hafnargjöld taka m.a. mið af aflaverðmæti.

Mér reiknast til að ef útgerðarmenn sem hafa veiðar og vinnslu á sömu hendi myndu ekki ástunda þetta svindl og svínarí við verðlagningu á uppsjávarafla þá væri tekjur sveitarfélaga og ríkis frá árinu 2012 til 2018 5 til 6 milljörðum hærri.

Algjörlega magnað að stjórnmálamenn og sveitastjórnmenn skuli loka augunum þegar kemur að þessu svindli!“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: