Björn Valur Gíslason, skipstjóri og fyrrum þingmaður, skrifaði:
Almennt er pólitískt minni fólks ekki mikið, þó lengra sé en veður-minnið er hjá flestum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var spurð að því í viðtali á RÁS 2 í morgun hvort hún myndi eftir öðru eins ástandi á Alþingi eins og verið hefur síðustu daga og vikur. Þorgerður, sem er hokin af þingreynslu hikaði í fyrstu við að svara en vildi svo ekki dæma um hvort ástandi hefði áður verið svipað eða jafnvel verra.
Sem er skiljanlegt.
Árið 2009 stóð Þorgerður Katrín, þá sem varaformaður Sjálfstæðisflokksins, ásamt félögum sínum í sjálfstæðis- og framsóknarflokki, fyrir einu mesta málþófi í sögu þingsins – gegn öllum málum, alltaf. Alþingi var þá að störfum nánast fram að kjördegi þá um vorið vegna málþófs um breytingar á stjórnarskrá og eftir það svo til allt sumarið, fram að jólum og milli jóla og nýárs eða þar til Þorgerður Katrín og félagar luku málþófi sínu um fjölmörg mál, nokkrum tímum fyrir árslok.
Þó það séu bara 16 ár síðan þetta var er það runnið út af pólitísku minni flestra og þarfnast því upprifjunar.
Ég verð svo að játa að það er býsna gaman að lesa yfir sumar ræður Þorgerðar og fleiri frá þessum málþófs tíma í ljósi málflutnings þeirra í dag um oft á tíðum sambærileg mál.
Greinina birti Björn Valur á Favebooksíðu sinni.