- Advertisement -

Ekki þarf mikla rannsóknarvinnu til að finna út hvaða hug Þorvaldur hefur borið til þeirra ríkisstjórna sem ég hef setið í

Bjarni Benediktsson skrifaði þetta á Facebook:

Það er sennilega til vitnis um það að allt er að komast í sitt fyrra horf, þegar atvinnumál hagfræðings og fyrrverandi stjórnmálaforingja verða að stórfrétt. Ætli maður eigi ekki bara að vera þakklátur fyrir það.

Á Norðurlöndunum er gefið út rit um efnahagsmál sem kallast Nordic Economic Policy Review. Fjármálaráðuneyti norrænu ríkjanna fjármagna ritið, sem er gefið út undir hatti norrænu ráðherranefndarinnar. Þetta er ekki óháð fræðirit, heldur er því ætlað að styðja við stefnumótun norrænu ríkjanna í efnahagsmálum.

Nú eru sagðar fréttir af því að Þorvaldur Gylfason hafi ekki fengið að vera ritstjóri þessa blaðs. Ástæðan sé sú að starfsmaður íslenska fjármálaráðuneytisins hafi vakið athygli á þátttöku hans í pólitísku starfi og ráðuneytið hafi komið í veg fyrir að hann fengi vinnuna. Þetta eru megindrættirnir í fréttaflutningnum, sem hefur verið hlaðinn rangfærslum og starfsmaðurinn nafngreindur og settur í forgrunn á mjög ósmekklegan hátt vegna ákvörðunar sem var ekki á nokkurn hátt hans. Af þessu tilefni minni ég á að starfsmenn ráðuneyta starfa í umboði og á ábyrgð ráðherra. Þótt ekki séu öll samskipti borin undir mig ber ég á þeim ábyrgð og í þessu tilviki endurspeglast vilji minn um að tilnefna hvorki né samþykkja Þorvald Gylfason til þessara starfa. Reyndar hafði mér aldrei dottið í hug sá möguleiki að tilnefna hann og enginn nefnt hann við mig.

En þá að kjarna málsins, tilnefningu og ráðningu ritstjóra. Um hana er fjallað í starfshópi sérfræðinga í fjármálaráðuneytum Norðurlandanna. Starfið er ekki auglýst, heldur fer fram umræða í hópnum um þá einstaklinga sem hvert ráðuneyti leggur til. Engar sérstakar hæfniskröfur eru gerðar aðrar en þær að viðkomandi njóti trausts allra sem að valinu koma. Fulltrúi fjármála- og efnahagsráðuneytisins lagði fyrir mína hönd til konu sem hefur mikla reynslu af störfum, rannsóknum og skrifum á þessu fræðasviði. Til vara voru tvö önnur. Hvorugt þeirra var Þorvaldur Gylfason.

Að þessu sögðu vil ég leggja áherslu á að ákvörðun um ráðningu er tekin samhljóða, krafist er samsinnis allra fyrir ráðningu. Ekkert slíkt samþykki lá fyrir þann 1. nóvember sl., þegar Þorvaldi á að hafa verið boðin vinnan, sem var áður en nafn hans hafði nokkurn tímann verið nefnt við fulltrúa fjármálaráðuneytisins. Reyndar er það svo að þegar ég heyrði af þeirri uppástungu var ég afar skýr um að hann kæmi ekki til greina, enda tel ég að sýn og áherslur Þorvaldar Gylfasonar í efnahagsmálum geti engan veginn stutt við stefnumótun ráðuneytis sem ég stýri.

Það er meira en sjálfsagt að mæta fyrir þingnefnd og rekja þessi sjónarmið nánar. Þá gefst mögulega tækifæri til að fara nánar ofan í saumana á því hvers vegna ég tel Þorvald Gylfason tæplega eiga samleið með mínu ráðuneyti í þessu verkefni eða yfirhöfuð um önnur stefnumarkandi mál. Það verður þá í fyrsta sinn sem ég ræði um mögulegt samstarf við Þorvald Gylfason en ekki þarf að leggjast í mikla rannsóknarvinnu til að finna út hvaða hug Þorvaldur hefur borið til þeirra ríkisstjórna sem ég hef setið í undanfarin ár. Ef þörf krefur skal farið betur yfir það fyrir þingnefnd.

Ég mun þá einnig kalla eftir því hvernig fulltrúi Samfylkingarinnar telur það óeðlileg afskipti af ráðningu ritstjóra Nordic Economic Policy Review að fjármálaráðuneytið samþykki ekki umyrðalaust hugmyndina um Þorvald Gylfason. Ekki að ég efist um að hæfnisnefnd Samfylkingarinnar hafi borið Þorvald saman við aðra tilnefnda, en dugar það eitt og sér? Og hvers eiga aðrir þeir sem óformleg tillaga var gerð um að gjalda?

Þegar til kastanna kom var Ísland ekki eina ríkið sem ekki féllst á tillögu um ráðningu Þorvaldar Gylfasonar, eins og starfsmenn norrænu ráðherranefndarinnar hafa upplýst Þorvald um. En telji hann sig eiga eitthvað inni vegna óuppfylltra væntinga þarf hann að reka þau mál við þann sem sendi honum þetta meinta atvinnutilboð, – í fullkomnu heimildar- og umboðsleysi. Mögulega mun hann njóta fulltingis einhverra þingmanna Samfylkingar, jafnvel Pírata, á þeirri leið. Spurning er bara hvort það væru ekki óeðlileg afskipti af þeirra hálfu af ráðningu í starf sem aldrei hefur verið auglýst.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: