- Advertisement -

Er Bjarni Benediktsson vinstri sinnaður?

„Nú­ver­andi vinstri stjórn­in á Íslandi tek­ur við 3% fjölg­un og ætl­ar að reisa gáma­búðir til að hýsa fólk. Eng­ar áætlan­ir eru gerðar til að bregðast við.“

Einar S. Hálfdánarson sendir Bjarna Benediktssyni súra sendingu í Mogga dagsins. Einar er hægri maður. Hann er faðir Diljár Mist Einarsdóttur þingkonu Sjálfstæðisflokksins. Þó skipti kannski ekki máli hér. Einar er ósáttur í meira lagi. Í Mogga dagsins er grein eftir Einar. Einn kafli hennar er sérstakur. Einar er greinilega ósáttur við þátt Sjálfstæðisflokksins í stjórnarsamstarfinu:

„Nú­ver­andi vinstri stjórn­in á Íslandi tek­ur við 3% fjölg­un og ætl­ar að reisa gáma­búðir til að hýsa fólk. Eng­ar áætlan­ir eru gerðar til að bregðast við. Heil­brigðis­kerfið tek­ur bara á sig álagið sem þessu fylg­ir og sama gild­ir um annað. Og Kristrún boðar enn hærri skatta ofan á skatta­heims­metið þegar hún tek­ur við. Árang­ur­inn mun ekki láta á sér standa; skatt­greiðend­ur fara af land­inu og skatt­neyt­end­ur koma. Hún þarf að skoða reynslu annarra þjóða og reynd­ar líka okk­ar á ár­inu 2009,“ skrifaði Einar S. Hálfdánarson.

Það er og. Víða er sótt að Bjarna þessa dagana. Þær raddir gerast æ háværari að hann muni leika lykilhlutverk í komandi ráðherra kapli. Þá þannig að það verði hann sem víkur úr ríkisstjórninni.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Einar hnýtir einnig í Kristrúnu Frostadóttur. Hann reiknar með fólksflótta komist hún til valda.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: