- Advertisement -

Er Mogginn frjáls fjölmiðill?

„Það var bara augljóst markmið þess ágæta miðils að koma í veg fyrir Evrópusambandsaðild, halda uppi vörnum fyrir útgerðina og sjá til þess að ákveðnir aðilar héldu sínum kvóta.“

Sigmundur Ernir Rúnarsson.

„Gleymum því heldur ekki, svo talað sé tæpitungulaust, að helsti keppinautur Ríkisútvarpsins hvað afl varðar er eina dagblaðið sem eftir er. Hvert er hlutverk þess? Sá sem hér stendur tók eftirminnilegt viðtal við fyrrverandi stjórnarformann Árvakurs, þann ágæta mann, og vin minn, Óskar Magnússon. Hann sagði umbúðalaust í því viðtali á Hringbraut, sem er náttúrlega enn einn fjölmiðillinn sem fallinn er, að hlutverk Morgunblaðsins í ljósi nýrra eigenda á þeim tíma hefði verið að verja kvótakerfið, verja útgerðina og koma í veg fyrir að Ísland gengi í ESB. Það var bara augljóst markmið þess ágæta miðils að koma í veg fyrir Evrópusambandsaðild, halda uppi vörnum fyrir útgerðina og sjá til þess að ákveðnir aðilar héldu sínum kvóta,“ sagði Sigmundur Ernir Rúnarsson í þingræðu.

„Þetta er auðvitað ekki heilbrigðasta fjölmiðlun sem til er í heimi hér. Hún tekur afstöðu með einu afli á móti öðrum, þannig að hafandi það líka í huga þá er það ekki forgangsmál þessarar ríkisstjórnar og þingheims að veikja sterkasta miðilinn sem þó enn þá er eftir,“ bætti hann við.

Ræða hans er til muna lengri. Hana má lesa hér.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: