- Advertisement -

Erum að framleiða öryrkja í boði ríkisins

Hræsni okkar ríður ekki við einteyming.

„Samkvæmt nýjustu tölum eru 2.519 einstaklingar á biðlista og búnir að bíða í þrjá mánuði eða lengur. Heildarfjöldi þeirra sem eru á biðlistum í dag er að nálgast 4.500 manns. Það er staðreynd að þeir sem þar bíða eru að bíða eftir brjósklosaðgerðum, augasteinaaðgerðum, liðskiptaaðgerðum og bíða og bíða,“ sagði Guðmundur Ingi Kristinsson á Alþingi fyrr í dag.

„Hræsni okkar ríður ekki við einteyming. Á sama tíma og við erum að dæla núna ekki milljörðum, ekki tugmilljörðum heldur hundruð milljörðum í einkarekin fyrirtæki til að bjarga þeim, segjum við: Nei, við megum ekki nota einkarekin fyrirtæki til þess að stytta biðlista. Við setjum 400 milljónir í fjölmiðla, einkarekna fjölmiðla, en það má ekki setja 400 milljónir t.d. í Klíníkina í Ármúla til að gera 400 aðgerðir. Nei, það má frekar senda viðkomandi til Svíþjóðar eða annað og gera þar 400 aðgerðir fyrir 1,2 milljarða. Hvaða réttlæti er í því? Hvernig stendur á að staðan skuli enn þá vera þannig í dag að fólk kvelst á biðlistum? Það er dauðans alvara að þurfa að hanga á biðlistum, bryðjandi rótsterkar verkjatöflur, láta fjölskyldu og vini horfa upp á þetta. Og hvað erum við þá að gera? Jú, við erum að framleiða öryrkja í boði ríkisins.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: