- Advertisement -

Fátækir allt að fimm ár á biðlista

Vel er hægt að ímynda sér angistina og óöryggið.

Sanna Magdalena Mörtudóttur Sósíalistaflokki bendir á að biðtími eftir fé́lagslegu leiguhúsnæði er oft um fimm ár. „Meðalbíðtími þeirra sem fengu úthlutað félagslegt húsnæði árið 2018 var 35 mánuðir eða tæp þrjú ár.“

Gerð var könnun á stöðu þeirra sem bíða eftir félagslegu húsnæði.

„Þetta eru sláandi niðurstöður og sorglegt að aðstæður sumra fjölskyldna með börn séu svona slæmar í Reykjavík. Hér eru lýsingar sem eru á pari við lýsingar sárfátæks fólk i löndum sem eru langt því frá að vera eins rík og vel sett og Ísland og Reykjavík,“ segir Kolbrún Baldursdóttir, Flokki fólksins.

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Vel er hægt að ímynda sér angistina og óöryggið sem börnin í þessum aðstæðum eru að upplifa. Það fer gríðar illa með börn að búa í langvarandi óöryggi og skynja þau flest þegar þroski færist yfir, áhyggjur og jafnvel vonleysi foreldrana sem hefur síðan margföldunaráhrif á slæma líðan barnanna,“ segir Kolbrún.

Hún bendir á að nú séu 944 einstaklingar á biðlista eftir félagslegu húsnæði, fjórðungur er með börn á framfæri. Á biðlista eftir félagslegu húsnæði í byrjun árs 2015 voru 827, nú í byrjun árs 2019 voru 901 á biðlista.

„Stefnuleysi í þessum málaflokki önnur en að fjölga félagslegu leiguhúsnæði hefur ekki fækkað fólki á biðlista.“

Fulltrúar meirihlutaflokkanna lesa annað úr skýrslunni: „Í skýrslunni kemur fram að þann 1. sept. 2018 voru 944 einstaklingar á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði en voru 901 þann 1. jan. 2019 og fer því fækkandi.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: