- Advertisement -

Fjarðarheiðargöng hluti af vegakerfi Íslands og Evrópu

Það er ekkert sem bendir til þess að þróun næstu 60 ára verði eitthvað frábrugðin síðustu 60 árum.

Þórhallur Pálsson.

Facebook: Þórhallur Pálsson, skrifaði þennan fína pistil um samgönguáætlunina og hversu röng hún er fyrir Austfirðinga:

„Það er næsta víst að tvenn jarðgöng til Mjóafjarðar verða ekki „gatslitin“ í hvelli. Það er ekki öllum ljóst hverjum er ætlað að nota þessi jarðgöng. Leiðin um þau lengja leiðina fyrir Seyðfirðinga upp í Egilsstaði um 50 km. Jú, það verður reyndar einum 16 km styttra fyrir Norðfirðinga að skreppa upp á Hérað. Þ.e.a.s. ef Fjarðarheiðin er fær.

Það er eins og fólk átti sig ekki á því að það er árið 2025 núna. Ekki árið 1960. Fyrir rúmum 60 árum var Neskaupstaður afgerandi stærsti byggjakjarninn á Austurlandi. Í dag er íbúafjöldinn þar nokkurn veginn sá sami og þá.

Þú gætir haft áhuga á þessum

það er víða snjóflóðahætta.

Á sama tíma hefur þéttbýlið á Egilsstöðum tífaldast að íbúafjölda og er nú meira en tvöfalt fjölmennari en næststærsti byggðakjarninn.

Til Egilsstaða sækja Seyðfirðingar verslun, þjónustu, skóla, miðlæga þjónustu sveitarfélagsins og flugsamgöngur. Þessa sömu þjónustu sækir einnig fjöldi fólks frá öðrum þéttbýliskjörnum á Austurlandi.

Það versta er þó að þessi tvenn göng til Mjóafjarðar skapa enga örugga leið fyrir Seyðfirðinga, því það er víða snjóflóðahætta í innanverðum Mjóafirði og einnig í Fannardal inn af Norðfirði, eins og dæmin sanna. Fagridalur, þó vegur um hann liggi ekki ýkja hátt yfir sjó er ekki heldur laus við snjóflóða- og skriðuhættu.

Vesalings ráðherrann virðist alveg horfa framhjá því hvert samgönguleiðir á Austurlandi liggja. Einnig hefur hann greinilega ekki sett sér fyrir sjónir líklega þróun byggða og mannlífs á Austurlandi næstu áratugina. Það er ekkert sem bendir til þess að þróun næstu 60 ára verði eitthvað frábrugðin síðustu 60 árum.

Leiðin milli Seyðisfjarðar og Egilsstaða, hvort sem hún er um fjallveg eða í jarðgöngum, er hluti af samgöngu- og vegakerfi – ekki bara Íslands, – heldur Evrópu. Um þessa leið fer umtalsvert magn af vörum til útflutnings og akandi umferð frá meginlandinu.

Í ljósi tíðinda dagsins má velta fyrir sér hvenær ráðherrann setur Loðmundarfjarðargöng, Neshálsgöng og Húsavíkurheiðargöng á dagskrá ! Það væri álíka gáfuleg hringtenging.

Fljótagöng eiga að leysa Strákagöng og veg um Almenninga af hólmi. En Siglfirðingar sækja sína þjónustu til Akureyrar. Hefði ekki verið nær að gera ný göng norður þar til að leysa af Múlagöngin ?”


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: