Facebook:
Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, skrifaði
Í gær var atkvæðagreiðsla um fjárlög fyrir árið 2026. Sjálfstæðisflokkurinn lagði til:
- Heildarútgjaldasparnað uppá 45 milljarða – FELLT
- Skattalækkanir uppá 31 milljarð – FELLT
…þá fer forseti þingsins af hjörunum og kallar þingmenn stjórnarandstöðunnar pakk…
Stjórnin felldi hugmyndir sem hefðu tryggt hallalaus fjárlög og um leið lækkað byrðarnar á landsmenn. Þess í stað á að auka útgjöld um 143 milljarða og senda heimilinum og fyrirtækjunum í landinu reikninginn.
Það hefur ekki farið fram hjá þjóðinni flumbrugangur menntamálaráðherra þar sem hann misnotar aðstöðu sína, og lætur farsælan skólamann ekki fá endurráðningu. Þegar það sprakk allt uppí andlitið á honum og forsætisráðherra missti stjórn á skapi sínu í þingsal, þá ákvað hann að endurráða ekki skólameistara Menntaskólans á Egilsstöðum. Sá las um það í fjölmiðlum! Allt gert til að láta líta út fyrir, að hitt fíaskóið hafi ekki verið hefndarleiðangur Flokks fólksins gagnvart skólameistara Borgarholtsskóla sem hafði gagnrýnt stefnu ráðherra og fengið hið fræga Nike símtal frá Ingu Sæland.
Í allri þessarri geðshræringu þá fer forseti þingsins af hjörunum og kallar þingmenn stjórnarandstöðunnar pakk þegar farið er í fundarstjórn yfir því að samgönguráðherra vitnar í skýrslu sem hann hefur ekki lesið, og staðfestir, það sem allir vissu að það er hrein og bein pólitík, ekki „faglegt“ mat, að setja Austfirðinga aftast á merina, sama hvort er um að ræða göng eða vegagerð.
Vinnubrögð ráðherra þessarar ríkisstjórnar og talsmáti og framkoma forseta Alþingis er fyrir neðan virðingu þingsins og óboðleg gagnvart fólkinu í landinu. Það á betra skilið.