- Advertisement -

Fótgönguliðum Katrínar hafnað

Rósa Björk og Andrés Ingi flúðu örlög þingmanna Vinstri grænna.

„Grimm örlög fótgönguliða Katrínar Jakobsdóttur í þinginu, þeir eru allir felldir í prófkjöri,“ skrifar Gunnar Smári um útreið óbreyttra þingmanna Vinstri grænna.

„Það hefur komið í ljós að Rósa Björk og Andrés Ingi tóku rétta ákvörðun með því að reyna að bjarga sér á flótta undan reiði flokksfólks. Lilja Rafney, Bjarkey, Kolbeinn og Ólafur liggja nú í valnum. Ef Steinunn Þóra verður felld í Reykjavík mun enginn almennur þingmaður hafa lifað þetta stjórnarsamstarf af,“ skrifar hann og endar svona:

„Almennt má ráðleggja áhugasömu fólki um pólitík eitt; aldrei fylgja Katrínu Jakobsdóttur, það er pólitískt sjálfsmorð.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: