Stjórnmál: Þorbjörg Sigríður dómsmálaráðherra er að brenna inni á tíma. Mál ríkislögreglustjóra verður að leysa. Strax. Ef ekki þá er sem svo að ráðherrann og ríkisstjórnin öll ætli ekki a gera það sem gera þarf. Með hverjum deginum sem líður veikist staða ráðherrans og ríkisstjórnarinnar.
Ekki leikur minnsti vafi á að nánast allur almenningur þolir ekki þegar fólk í efstu þrepum kemst upp með – nánast hvað sem er. Sigríður Björk breytti rangt. Í áraraðir. Það fellur ekki í góðan jarðveg. Dómsmálaráðherra hefur leikið vafasama leiki í útlendingamálum og má ekki við að ganga um kámug vegna máls Sigríðar Bjarkar.
Ráðherrann má ekki leika tóma biðleiki. Hún verður að segja af eða á. Ef SBG má sitja áfram verður ÞSG að segja það. Og ef ekki, þá þarf að þrífa til hið fyrsta.
Ríkisstjórnin hefur haft byrinn í seglin hingað til. Meðan ekki er tekin ákvörðun um hvað beri að gera er staðan arfa vond fyrir ráðherrann og ríkisstjórnina alla.