- Advertisement -

„Þegar náttúruhamfarir skella á stöndum við saman“

Facebook:

Guðrún Hafsteinsdóttir skrifaði:

„Ég spurði fjármálaráðherra einfaldrar spurningar í óundirbúnum fyrirspurnatíma í gær: Ætlar ríkið í alvöru að senda fyrirtækjum á Reykjanesskaga kröfubréf fyrir varnargarðana sem reistir voru til að verja fólk, heimili og innviði fyrir náttúruhamförum?

Ráðherrann segist ekki ætla að rjúfa neina þjóðarsátt, heldur bara að „láta á það reyna” hvort kostnaðurinn endurheimtist að einhverju leyti. En matsbeiðni ríkisins segir svart á hvítu að ríkið telji sig eiga kröfu á hendur fyrirtækjunum um endurgreiðslu kostnaðar. Með öðrum orðum er ríkið að undirbúa mögulegt dómsmál til að fá þessa peninga greidda til baka,“ segir í nýjum skrifum Guðrúnar Hafsteinsdóttur formanns Sjálfstæðisflokksins.

„Samfélagssáttmálinn okkar hefur verið skýr. Þegar náttúruhamfarir skella á stöndum við saman. Ríkið verndar fólk og atvinnulíf. Það sendir ekki reikninginn á þá sem hafa þegar hafa búið við eldgos, rýmingar, tekjutap og óvissu.

Þá situr eftir ein einföld spurning: Hversu slæm er staðan orðin í ríkisfjármálunum þegar farið er að leita að tekjum með því að senda möguleg kröfubréf á fyrirtæki á hamfarasvæðum vegna almannavarna?“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: