- Advertisement -

Við munum alltaf passa upp á Ísland

Á þessum fundum eru skilaboð mín til alþjóðasamfélagsins alltaf skýr. Frjáls viðskipti á milli landa eru forsenda þess að sjálfstæðu eyríki eins og Íslandi farnist vel.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra skrifar:

Komin heim frá Kaupmannahöfn eftir vel heppnaðan leiðtogafund í boði Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur.

Það hefur sannarlega verið í nógu að snúast á alþjóðavettvangi síðustu daga. Fundir beggja vegna Atlantsála sem sneru að mestu leyti að öryggis og varnarmálum. En líka breyttu landslagi þegar kemur að alþjóðlegum viðskiptum.

Við tökum þessu alvarlega.

Á þessum fundum eru skilaboð mín til alþjóðasamfélagsins alltaf skýr. Frjáls viðskipti á milli landa eru forsenda þess að sjálfstæðu eyríki eins og Íslandi farnist vel. Samstaða um að halda þessum gáttum opnum er algjört grundvallaratriði fyrir okkur.

Mikil umræða hefur líka átt sér stað um nýjar ógnir. Drónar hafa sést á flugi víða í Evrópu, nærri mikilvægum innviðum. Hlutirnir hafa breyst hratt í kringum okkur síðustu mánuði. Og eðlilega tekur íslenskur almenningur eftir því.

Við tökum þessu alvarlega. Og við munum alltaf passa upp á Ísland. Til dæmis með því að leita allra leiða til að styrkja stöðu okkar í samskiptum við erlend ríki. Þetta er mér efst í huga í hvert einasta skipti sem ég geng inn á fund og í samtölum við kollega mína – hvort sem það er forsætisráðherra Bretlands, leiðtogar Evrópusambandsins, Bandaríkjaforseti, forsætisráðherra Kanada eða aðrir. Frjáls og opin viðskipti. Og að Ísland sé sjálft leiðandi þegar kemur að vörnum á okkar svæði.

Á leiðtogafundinum í gær stýrði ég pallborði um efnahagslegt öryggi. Þátttakendur komu víða að úr Evrópu. Gott þótti mér um að hafa félaga okkar frá Grænlandi og Færeyjum með – bandamenn sem er mikilvægt að við vinnum áfram með að frjálsum viðskiptum og í öryggis- og varnarmálum. Svo að fólk sjái tækifæri í að fjárfesta í innviðum og taka þátt í uppbyggingu á Norðurslóðum. Á forsendum okkar sem hér búum.

Samtöl síðustu daga hafa skipt miklu máli. En nú er gott að vera komin heim. Þingið fer vel af stað. Og nóg af verkefnum framundan hjá ríkisstjórninni. Á næstu vikum kynnum við stóran húsnæðis- og efnahagspakka. Það er verk að vinna. Ég hlakka til.

Fyrirsögnin er Miðjunnar.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: