- Advertisement -

Gjáin í Sjálfstæðisflokki dýpkar enn


Styrmir Gunnarsson skrifar á styrmir.is.

„Dagblaðið Daily Telegraph, sem lengi hefur verið í áþekkum tengslum við Íhaldsflokkinn í Bretlandi, eins og Morgunblaðið var lengi í við Sjálfstæðisflokkinn, lýsir ástandinu í flokknum á þann veg, að líkja megi við borgarastyrjöld vegna BREXIT.“

Hann segir vera of langt gengið að líkja skoðanaágreiningi í Sjálfstæðisflokknum um Orkupakka 3 frá ESB við borgarastyrjöld, en tilfinningar séu sterkar og fara harðnandi.

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Hvað er gert í lýðræðislegum stjórnmálaflokki, þegar svo er komið? Þá talar fólk saman,“ skrifar Styrmir.

„Heyrzt hefur að forystusveit Sjálfstæðisflokksins hafi fengið hvatningu um að efna til slíks samtals við hina virku grasrót í flokknum með því að efna til málþings, þar sem fram kæmu talsmenn beggja sjónarmiða og málin yrðu rædd fyrir opnum tjöldum.

Það verður fróðlegt að fylgjast með því, hvernig slíkum hvatningum verður tekið. Verði þær virtar að vettugi segir það sína sögu.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: