- Advertisement -

Guðrún segir Kristrúnu hafa breytt frásögn sinni

Alþingi:

Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins skrifaði:

„Landsvirkjun er gullegg þjóðarinnar. Við Íslendingar höfum verið svo lánsöm að byggja upp fyrirtæki sem er þjóðhagslega mikilvægt og hefur staðið undir atvinnu og lífskjörum um allt land.

Forsætisráðherra hitti Hörð Arnarson, fyrrverandi forstjóra Landsvirkjunar, sama dag og hann tilkynnti starfslok sín. Hann hafði þá þegar varað við því að samskipti fjármálaráðuneytisins og stjórnar gætu talist pólitísk afskipti og mögulega gert Landsvirkjun óstarfhæfa. Fyrir liggur að fjármálaráðherra vissi af fyrirhugaðri uppsögn Harðar og ástæðum hennar í að minnsta kosti þrjá daga áður en Hörður hitti forsætisráðherra.

…einnar mikilvægustu
eignar þjóðarinnar,
er glannaskapur.

Í dag, í óundirbúnum fyrirspurnatíma, spurði ég því forsætisráðherra hvort hún vissi um þessar aðvaranir Harðar þegar fjármálaráðherra sagði Alþingi 19. október að öll sagan væri sögð?

Eftir fundinn með Herði sagði forsætisráðherra í fjölmiðlum að þau hefðu rætt almennt um stöðu fyrirtækisins. Í dag breyttist frásögnin og hún sagði þau hafa rætt almennan ágreining um verklag. En hún svaraði ekki skýrt hvort Hörður hefði rætt við hana um viðvaranir sínar um pólitísk afskipti.

Það er fagnaðarefni að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd muni rannsaka málið enda augljóst að ekki eru öll kurl komin til grafar. En þessi léttúð gagnvart alvarlegum viðvörunum um Landsvirkjun, einnar mikilvægustu eignar þjóðarinnar, er glannaskapur.

Gleymum ekki að forsætisráðherra ber ábyrgð á vinnubrögðum ríkisstjórnar sinnar. Ef hún vissi af viðvörunum um pólitísk afskipti af Landsvirkjun þegar fjármálaráðherra sagði Alþingi að öll sagan væri sögð, verður hún að svara fyrir það að þing og þjóð fengu ekki alla söguna.

Alþingi getur ekki sinnt eftirlitshlutverki sínu ef ráðherrar veita þinginu ekki allar upplýsingar sem máli skipta. Það er forsenda þess að lýðræðislegt aðhald virki.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: