- Advertisement -

Um 40 brotamönnum vísað úr landi

Dómsmál:

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra skrifaði grein á Vísi. Hér fara nokkur brot greinarinnar:

Um 40 brotamönnum hefur í kjölfar lagabreytinganna verið vísað úr landi. Ástæða er til að nefna að ríkisstjórnin naut ekki stuðnings stjórnarandstöðunnar í þessu máli. Hún sat öll hjá. Það er ekki síst athyglisvert að Miðflokkurinn sat hjá.

Samkvæmt nýjum tölum ríkislögreglustjóra fylgdi heimferðar- og fylgdadeild 271 einstaklingum úr landi á fyrstu níu mánuðum ársins.

Þar af tengdust mál 89 einstaklinga sakaferli, fangaflutningum og framsölum.

Liður í þessu er að vísa erlendum föngum úr landi. Ríkisstjórnin er í aðgerðum og vinnur eftir skýrri stefnu sem er að skila árangri.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: