- Advertisement -

Hættuspil að hlusta ekki á fólk

Fólk rís upp og krefst virðingar og bættra kjara.

„Það er einhver misskilningur í gangi um að verkföll eigi helst ekki að bitna á neinum. Verkföll eru neyðarúrræði sem stéttarfélög beita til að knýja á um samninga og eðli málsins samkvæmt bitna þau á fyrirtækjum og almenningi.“

Þetta er meðal þess sem Drífa Snædal, forseti ASÍ, skrifar í helgarpistli sínum.

„Mörg fyrirtæki bera sig illa þessa dagana og auðvitað eru blikur á lofti í ferðaþjónustunni eins og öllum er kunnugt. Það hefur hins vegar verið ljóst um langt skeið að vinnandi fólk er að rísa upp og krefjast virðingar og bættra kjara og aukins jöfnuðar. Það er því ekki bara krafa dagsins í dag heldur til framtíðar að fyrirtæki og stjórnvöld hlusti og taki mark á þessum kröfum í öllum sínum störfum,“ segir þar enn fremur.

„Það er hættuspil að hlusta ekki á almenning og mæta ekki kröfum um aukinn jöfnuð, ekki bara hér á landi heldur um heim allan. Í því sambandi má minna á mikinn stuðning almennings við þá kröfu ASÍ að nýta skattkerfið til jöfnunar frekar en nú er gert. Í nýrri skoðanakönnun sem Gallup gerði fyrir ASÍ kom fram að 83% aðspurðra eru fylgjandi því að fólk með tekjur undir 500 þúsund á mánuði fái meiri skattalækkun en aðrir. Það er mjög afgerandi niðurstaða.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: