- Advertisement -

Haraldur Benediktsson fer á kostum

Stingur upp á þjóðaratkvæði um sæstreng.

Þingmaðurinn Haraldur Benediktsson fer á kostum í grein í Mogganum í morgun. Hann veit að flokkur hans er á sprungusvæði. Innanflokksátökin þar hafa aldrei verið meiri. Aldrei. Orkupakkinn er kornið sem fyllti mælinn. Undir ólgar einnig vegna Icesave, Panamaskjalanna og veru Bjarna Benediktssonar þar og fleira og fleira má nefna.

Haraldur reynir nú trix sem hann sjálfur hefur enga trú, og ef ekki er hann eflaust sá einasti eini sem gerir það ekki. Lesum:

„Sú hug­mynd er hér sett fram að áskilja það í inn­leiðingu orkupakka 3 að setja laga­ákvæði um að slík teng­ing verði aðeins með samþykki þjóðar­inn­ar í sér­stakri at­kvæðagreiðslu. Sæ­streng­ur og bygg­ing grunn­tengi­virkja fyr­ir slíka teng­ingu verði því aðeins að meiri­hluti lands­manna samþykki það í at­kvæðagreiðslu.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Það þarf að finna annað útspil ef lægja á stórsjóinn í Sjálfstæðisflokknum.
Ljósmmynd: Vísir.

Halli kantu annan? Þjóðaratkvæði segir Haraldur. Eigum við ekki fyrst að fara að vilja þjóðarinnar? Þjóðin gekk til atkvæða um nýja stjórnarskrá og samþykkti. Frá þeim hefur Haraldur, sem og fleiri, gert allt, allt til að koma í veg fyrir vilja þjóðarinnar. Hvorki Haraldi né nokkrum af hans kollegum er treystandi til að fara að vilja þjóðarinnar.

Það þarf að finna annað útspil ef lægja á stórsjóinn í Sjálfstæðisflokknum.

Eitt brot til viðbótar úr grein Haraldar sem birt er í Mogganum í dag.

„Teng­ing við raf­orku­kerfi annarra landa er af­drifa­rík. Góð þekk­ing er á hvernig orku­reikn­ing­ar heim­ila í ná­granna­lönd­um okk­ar hafa hækkað gríðarlega. Það er von að ótti sé við slíka þróun hér. Teng­ing um sæ­streng er því grund­vall­ar­mál og mun því verða forsendubreyting. Það gild­ir einu þó að sagt sé í op­in­berri umræðu að Ísland hafi burði til að jafna slík­an kostnað fyr­ir neyt­end­ur – reynsl­an er önn­ur.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: