- Advertisement -

Hér duga ekki áframhaldandi tvíræð skilaboð

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, skrifar:

Það sem situr eftir heimsókn Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna í gær er að hljóð og mynd innan ríkisstjórnarflokkanna fer ekki saman. Ríkisstjórnin heldur áfram að senda frá sér óskýr og tvíræð skilaboð til alþjóðasamfélagsins í varnar og öryggismálum sem er alvarlegt og maður spyr sig hvort Guðlaugur Þór og Pence hafi setið sama fundinn. Þeir höfðu að minnsta kosti ólíka upplifun á niðurstöðu mála; um aðkomu Kínverja með verkefninu Belti og braut og Bandaríkjamanna að Norðurslóðum.

Það er ljóst að alþjóðamálin og þátttaka okkar þar munu leika stærra hlutverk í íslensku samfélagi en áður. Það er vont að sjá að stjórnarflokkarnir eru ekki samstíga og að bakland flokkanna sé tvístígandi þegar það kemur að því að vera virkur þátttakandi í alþjóðasamstarfi. Ég er handviss um að fjölþjóðasamningar séu af hinu góða og gagnist okkur Íslendingum betur en tvíhliða samningar. En mér finnst samt sem áður varhugavert að blanda saman efnahagsmálum og öryggismálum líkt og gert var í gær.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Það gengur ekki að ríkisstjórnin ræði þessi málefni fyrst við Bandaríkjamenn sbr. fundur þeirra við Pence í gær og við Pompeo fyrr á árinu. Því mun ég óska eftir því að forsætisráðherra mæti fyrir fund utanríkismálanefndar til að ræða heimsókn varaforseta Bandaríkjanna og reyna þannig að átta okkur betur á því hver stefna ríkisstjórnarinnar er.

Hér duga ekki áframhaldandi tvíræð skilaboð.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: