- Advertisement -

Hin heppna hótelþerna og fjármagnið

Gjöriði svo vel, njótið lestursins, ekki oft sem svona greiningarfærni á samfélagi kemst á prent.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, skrifar:

Einu sinni sagði Mitt Romney „corporations are people, my friend“ og uppskar innilegt alþýðufliss. Nú höfum við eignast okkar eigin Romney en Helgi Vífill Júlíusson segir í Fréttablaðinu í dag: „Eins og launafólk á fjármagn rétt á umbun sem fer eftir áhættunni sem er tekin hverju sinni.“


Mikið hefur hann Helgi verið ánægður með sig þegar honum duttu þessi snjöllu orð í hug. Og mikið ætla ég að hugsa um þetta oft í dag: Hótelþernan á rétt á umbun rétt eins og fjármagnið, heppin hún. En fjármagnið á samt meiri rétt á umbun þannig að ef hótelþernan fær 340.000 krónur í umbun og þarf svo að borga gjöld og svo leiguna og svo kaupa mat og umbunin klárast alltaf áður en næsti skammtur af umbun kemur þá er ekki hægt að ræða það neitt. Af því að fjármagnið hefur verið ekki minna duglegt en hún, og lifir undir miklu álagi vegna allrar áhættunnar og ætlar einhver hótelþerna að vera svo gráðug að svína á aumingja fjármagninu, bara af því að hún getur ekki passað upp á að láta krónurnar sínar duga?
Gjöriði svo vel, njótið lestursins, ekki oft sem svona greiningarfærni á samfélagi kemst á prent.





Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: