- Advertisement -

Hvar byrjar óhófið?

Hvar er línan þar sem óhófið byrjar?

„Undanfarna daga hefur verið rætt mjög um kjör bankastjóra Landsbankans. Það vill svo til að nú í morgun birtist frétt á mbl.is þar sem bankaráð Landsbankans segir að laun bankastjóra bankans séu að mati þess í samræmi við eigendastefnu ríkisins þar sem fram kemur að starfskjarastefna bankans skuli vera samkeppnishæf en hófleg og ekki leiðandi. Bankaráðið telur sem sagt að þær 4 milljónir sem bankastjórinn hefur í laun séu hófleg laun,“ sagði Þorsteinn Sæmundsson á Alþingi fyrr í dag.

Þorsteinn er eflaust ekki einn um að vera spyrjandi eftir yfirlýsingu bankaráðsins.

„Við þessa yfirlýsingu bankaráðsins vaknar ein spurning mín til þess: Hvar er línan þar sem óhófið byrjar? Ég held að það væri mjög fróðlegt fyrir alla ef bankaráð Landsbanka Íslands myndi birta upplýsingar um hvað er óhóflegt að mati þess,“ sagði Þorsteinn.

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Það er kannski hugmynd fyrir þá sem skipa þetta bankaráð að koma málum þannig fyrir að þjóðin geti sagt álit sitt á störfum þess á sirka fjögurra ára fresti og kosið bankaráðið beinni kosningu. Eins og er núna hafa kjörnir fulltrúar í þessu landi engan aðgang og ekkert aðgengi og enga aðkomu að neinum þeim ráðstöfunum eða ákvörðunum sem teknar eru í þessum banka sem ríkið eða þjóðin á þó 98,3% í. Það er umhugsunarefni.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: