- Advertisement -

Innflytjendum fjölgar

Hinn 1. janúar 2014 voru 27.447 innflytjendur á Íslandi eða 8,4% mannfjöldans. Það er fjölgun frá því í fyrra þegar þeir voru 8,1% landsmanna (25.926). Annarri kynslóð innflytjenda fjölgaði einnig á milli ára, voru 3.204 í fyrra en 3.532 nú. Samanlagt var fyrsta og önnur kynslóð innflytjenda 9,5% af mannfjöldanum og hefur það hlutfall einungis verið hærri árið 2009 (9,6%). Einstaklingum með erlendan bakgrunn, öðrum en innflytjendum, fjölgaði einnig lítillega milli ára, voru 6,4% mannfjöldans í fyrra en 6,5% nú.

Á vef Hagstofu Íslands kemur fram að eins og síðustu ár eru Pólverjar langfjölmennasti hópur innflytjenda hér á landi. Hinn 1. janúar síðastliðinn var 10.141 einstaklingur upprunninn frá Póllandi eða 36,9% allra innflytjenda. Pólskir karlar voru 40,5% allra karlkyns innflytjenda eða 5.321 af 13.140. Pólskar konur voru 33,7% kvenkyns innflytjenda. Þar á eftir koma innflytjendur frá Filippseyjum og Litháen, en frá hvoru þessar landa koma 5,2% innflytjenda.

Á Vestfjörðum og Suðurnesjum eru yfir 13% mannfjöldans innflytjendur
Hinn 1. janúar síðastliðinn bjuggu 20.689 fyrstu og annarrar kynslóðar innflytjendur á höfuðborgarsvæðinu, 66,8% allra innflytjenda á landinu. Hlutfall innflytjenda af mannfjölda var hæst á Vestfjörðum, en þar eru 13,2% innflytjendur af fyrstu eða annarri kynslóð. Næsthæst er hlutfallið á Suðurnesjunum þar sem 13,1% mannfjöldans eru innflytjendur eða börn þeirra. Lægst er hlutfallið á Norðurlandi vestra, en þar eru um 4,5% mannfjöldans innflytjendur eða börn þeirra.

597 einstaklingar fengu íslenskt ríkisfang árið 2013
Í fyrra fengu 597 einstaklingar íslenskan ríkisborgararétt og er það nokkur fjölgun frá fyrra ári, þegar 413 einstaklingar fengu íslenskt ríkisfang. Af þeim 597 einstaklingum sem fengu íslenskt ríkisfang voru flestir með fyrra ríkisfang frá Póllandi og Filippseyjum, eða 89 frá hvoru landi um sig. Árið 1991 fengu fleiri karlar en konur íslenskt ríkisfang, en á hverju ári eftir það hafa konur verið í meirihluta nýrra íslenskra ríkisborgara. Svo var og í fyrra þegar 359  konur fengu íslenskan ríkisborgararétt en 238 karlar.

Sjá frétt á vef Hagstofunnar

 


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: