- Advertisement -

Innilokaðir geimfarar á gjörgæslu

Tómas Guðbjartsson læknir skrifar:
Helgin hefur verið afar annasöm á gjörgæsludeildum Landspítala. Í kvöld náði ég þessu skemmtilega skoti á milli stríða – í gegnum öryggisrúðu á gjörgæsludeildinni við Hringbraut. Hjúkrunarfræðingarnir á Covid-stofunni okkar minna helst á geimfara á leið til tunglsins. Vírnetið í öryggisrúðunni minnir hins vegar á rimla í fangelsi – enda taka hjúkrunarfræðingarnir okkar 3-4 klst. tarnir þarna inni tvisar á vakt án þess að nærast eða komast á klósett. Það er einfaldlega gert til að minnka smithættu og þurfa ekki að skipta um hlífðarföt að óþörfu. Það vantar samt ekki gleðina og þær gerðu alls kyns kúnstir fyrir mig og myndavélina sem ekki þolir birtingu. Mér finnst ég ná að fanga stemmninguna í öllu annríkinu á þessu augnabliki en það var vinur minn RAX sem á heiðurinn að myndvinnslunni, þ.e. gera rimlana skýrari. Því eins og þið sjáið þurfa þessar stórglæsilegu konur enga fótósjoppun!

Myndatextinn: Frá vinstri Anna María Leifsdóttir, Halldóra Dögg Jónsdóttir, Sólveig Kristjánsdóttir og Áslaug Arnoldsdóttir.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: