„Ríkisstjórnin með öðrum orðum er að draga úr verðmætasköpun og draga úr þrótti samfélaganna, sveitarfélaganna hringinn í kringum landið.“
Sigurður Ingi Jóhannssson.
Sigurður Ingi Framsóknarfornaður kom í ræðustól Alþingis þar sem hann talaði um efnahag íslenska ríkisins.
„Ég ætlaði að gera hér að máli mínu aðeins stöðuna á Íslandi efnahagslega sem er talsvert önnur mynd en núverandi stjórnarflokkar teiknuðu upp á síðastliðnum misserum og í aðdraganda kosninga. Lífskjör eru í fyrsta sæti að mati Sameinuðu þjóðanna, lífskjör almennings. Á velsældarmælikvarða, sem eru þó fleiri mælikvarðar heldur en hagvöxtur, erum við líka í fyrsta sæti,“ sagðu Sigurður Ingi.
Næst sagði SIJ: „Við höfum séð aukinn kaupmátt og umtalsvert meiri en annars staðar. Við sáum ársreikninga sveitarfélaganna birtast núna þar sem þau eru að skila mun betri afkomu en þau höfðu vænst. Hins vegar eru mjög háir raunvextir og eru búnir að vera mjög háir. Það var mikið aðhald í ríkisrekstri, þrátt fyrir mótbárur núverandi meiri hluta á þeim tíma, sem skilaði samdrætti á síðasta ári, jafnvægi í mörgu, þar á meðal jafnvel á húsnæðismarkaði þótt við viljum sannarlega byggja meira. Hagvexti var spáð 2,5% í fjárlögunum sem fóru hér í gegn og núverandi ríkisstjórn styðst enn við. Nú er búið að endurmeta þá hagspá, hún er komin niður í 1,6% og stefnir jafnvel í 1% yfir yfirstandandi ár. Þetta gerist eftir 100 daga afmælishöld núverandi ríkisstjórnar. Það gekk nefnilega býsna vel lengi vel en nú eru verðbólguvæntingar því miður ekki að fara niður. Þrátt fyrir að Íslandsbankasalan hafi gengið ljómandi vel, frábærlega, sem er kannski mark um það að almenningur hafði talsvert rúm fjárráð, þá er hér margt að fara á verri veg,“ sagði formaðurinn og sagði svo:
Djöfulskap og látum.
„Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur lofaði því að slá niður verðbólguna með sleggju og djöfulskap og látum. Þau eru ekki að því. Þvert á móti boðar hér ríkisstjórnin skatta og breytingar sem hafa umtalsverð áhrif á sveitarfélögin sem eru að skila þessum góðu ársreikningum, sem talað var um að allt væri að fara til — já, við skulum ekki nefna þann mann. Ríkisstjórnin með öðrum orðum er að draga úr verðmætasköpun og draga úr þrótti samfélaganna, sveitarfélaganna hringinn í kringum landið.“