- Advertisement -

Jón Gnarr með gyðingum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifaði á dv.is. Hér er upphaf greinarinnar:

„Um leið og fréttir birtust af því að í miðbæ Reykjavíkur hefði verið opnað menningarhús gyðinga var ljóst að úr ákveðnum áttum kæmu afar hörð viðbrögð og flóðgáttir fúkyrða myndu opnast í netheimum. Sú varð líka raunin.

Einn þingmaður, Jón Gnarr þingmaður Viðreisnar, mætti á opnun menningarhússins og flutti ræðu. Þar minnti Jón Gnarr á þá dapurlegu staðreynd að gyðingar hér á landi óttast margir um öryggi sitt – og hafa því miður ríka ástæðu til.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Jón Gnarr segir menningarhús gyðinga vera „lifandi skólabrú sem eyðir fáfræði, skapar skilning, samfélag og vináttu.“ Ekki lögðu allir sama skilning og hann í opnun menningarhússins. Einhverjir virðast nefnilega telja forkastanlegt að gyðingar eigi samkomustað á góðum stað í Reykjavík og froðufella af bræði.

Viðbúið var að Jón Gnarr yrði fyrir harðri gagnrýni vegna komu sinnar á opnunina. Svo varð vitanlega. Engu skipti þótt hann hafi í ræðu sinni talað gegn fáfræði og fordómum og talað máli skilnings og vináttu. Það var notað gegn honum eins og ekkert væri sjálfsagðara.“

Hér er greinin öll.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: