- Advertisement -

Konur sem vilja trygga forréttindi

Þáðu léttar veitingar og báru saman skartgripi og skraut.

Sigurður Guðjónsson lögmaður skrifar:

Jafnréttisbarátta 8. mars 2019.

Þegar hótel þernur voru að ljúka vinnu og gera sig klárar fyrir baráttufund í norðan næðingi í miðborg Reykjavíkur í gær til að reyna að knýja fram hækkun launa sér til handa, kom annar hópur kvenna saman í hlýju húsnæði Kauphallarinnar við Laugaveg lyfti glösum, hringdi bjöllu, þáði léttar veitingar og bar saman skartgripi og skraut. Veislugestir Kauphallarinnar voru konur sem telja að jafnrétti felist helst í því að fá að sitja í stjórnum stórra félaga, og ekki sé verra að þau séu skráð í Kauphöll. Hjá þessum hópi þykir eðlilegt og sjálfsagt að hækka laun forstjóra ríkisbanka um 82% þannig að mánaðarlaun bankastjórans svari til nærri tvöfaldra árs launa hótel þerna og árslauna kennara.

Þannig er jafnréttisbarátta ekki alltaf um jafnrétti heldur líka um að tryggja forréttindi.

Fengið af Facebooksíðu höfundar.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: